Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Foreldrar, gætið barnanna ykkar fyrir Samtökunum 78
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Foreldrar, gætið barnanna ykkar fyrir Samtökunum 78

Inn um bréfalúguna hjá mér berast 3 dagblöð nær daglega. Eitt í áskrift, tvö ókeypis. Með því að fletta þeim sér maður myndir af hundruðum fólks, umfjöllun um alls konar mál – stjórnmál, listir, sport, skemmtanalíf, trúmál (mest vantrúarhjal)…. allt milli himins og jarðar. Fólk margt veit ekki sitt rjúkandi ráð. Skoðanir koma og fara, viðhorf breytast eins og vindáttin. Siðferðinu hnignar stöðugt. Hvar endar þetta? Nú mótmæla flutningabílstjórar kröftuglega og yfirvöld segjast ekkert athuga mál þeirra fyrr en í haust! Um 100 hjúkrunarfræðingar hóta að hætta vinnu verði ekki við þá samið á sómasamlegum nótum. Yfirvöld sýna lítinn vilja til þess –kostar of mikið- meðan þrír nýir sendiherrar er skipaðir –án sendiráðs! og embætti ræðismanns Íslands í Palestínu sett á fót. Það eru til peningar í það!

Við kristið fólk horfum upp á mikið fráhvarf frá kristinni trú. Svo virðist sem rödd sannrar trúar fái tæplega að heyrast í ríkisfjölmiðlunum. Sagt var nýlega, og það ítarlega, frá 10 manna sumarblóti ásatrúarmanna á Egilsstöðum. Taktu eftir 10 manna! Á sama tíma var bænaganga farin um nær allt land með hundruðum þátttakenda, en ekki orð um það í RÚV. Samt voru þeim sendar upplýsingar. Er það stefna fréttamanna að þegja kristilegt starf í hel? Láta þjóðina halda að nær ekkert sé að gerast á þeim vettvangi nema rekstur “öfgatrúar-sjónvarpsstöðvarinnar” Ómega? Nokkrum sinnum hef ég boðið RÚV gott kristilegt efni en ekki séð áhuga á þeim bæ.

Hvenær kemur að því að kristið fólk fer að hafa uppi friðsamleg (án ofbeldis) mótmæli gegn afkristnuninni? Mótmælagöngur. Útifundir við ráðuneyti og alþingi og við kvennadeild Landspítalans þar sem hundruð fóstureyðinga eru framkvæmdar árlega? Hvenær? Kristið fólk í Kaupmannahöfn mótmælti klámvæðingunni þar í borg með því að mála að næturþeli orðin “Ástin er hrein” á glugga klámbúðanna. Það vakti mikla athygli og hafði áhrif. Erum við kristið fólk eins og lúpur sem höldum að við eigum sífellt að þegja og vera “þæg”? Manstu eftir Móse og Aron gagnvart Faraó? Elía gegn Akas og baalprestunum? Spámönnunum gegn spilltum og fráföllnum konungum Ísraels? Jóhannesi skírara gagnvart forhertum prestum og faríseum og Jesú sem hreinsaði musterið?

Veistu hve þróunin hefur verið hratt niður á við í trú- og siðferðismálum síðustu 2-3 áratugi? Það er skelfilegt. Nú á að setja kristindómsfræðsluna til hliðar, lúffa fyrir kröfum múslima, gifta samkynhneigð pör í kirkjum (já, það verður ekki langt í það), umbera afkristnun Siðmenntar þegjandi og hljóðalaust, hvetja unga fólkið til að byrja kynlíf sem allra fyrst, deyða þau fóstur sem eru óæskileg. Hvenær verða líknardráp leyfð (eins og sums staðar er gert?). Er ekki mál að vakna og fara að láta í sér heyra meðan enn er málfrelsi –því það er líka á fallanda fæti. Hvað ætlar þú að gera?