Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Meira um samkynhneigð og trúna
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Meira um samkynhneigð og trúna

Í síðasta pistli mínum hér á síðunni varaði ég við áróðri Samtakanna 78 í efstu bekkjum grunnskólanna. Ég vona að foreldrar og skólafólk hafi tekið eftir þeim varnarðarorðum. Ég hef lítið fjallað um samkynhneigð í þessum pistlum mínum, þótt ekki hafi verið vanþörf á. Nú ætla ég aða bæta þar úr. Biblían talar nánast ekkert um samkynhneigð sem slíka, hins vegar segir hún að kynlíf tveggja af sama kyni sé rangt og andstætt þeim reglum sem Guð hefur sett sköpun sinni (Róm.1:16-32). Sambúð og kynlíf tveggja af sama kyni er ófrjótt og andstætt framvindu nýs lífs. Það þjónar einungis tilfinningum viðkomandi og líkamlegum þörfum þeirra. Kynlífið tveggja af gagnstæðu kyni í ábyrgu sambandi er hins vegar vermireitur nýs lífs sem viðheldur fjölskyldunni og er það Guði þóknanlegt. Guð sagði okkur að við ættum að vera frjósöm og fjölga okkur, en það á að gerast í ábyrgu sambandi tveggja af sitthvoru kyni. Þegar fólk einu sinni hefur leiðst burt frá Guði og hafnað orði hans finnur það oftast leiðir til að afsaka gjörðir sínar og ná fram vilja sínum eins og t.d.gerist í tæknifrjóvgunum hjá samkynhneigðum. Þar notar fólk nútíma tækni til að brjóta “umferðarreglur” Guðs um fjölskylduna.

Um orðið hneigð er það að segja að hneigðir höfum við öll, bæði góðar og slæmar. Enginn er úthrópaður vondur maður vegna hneigðar sinnar. Spurningin er hins vegar hvað við gerum við hneigðir okkar, hvort eflum við góðar hneigðir eða slæmar hneigðir? Ef við eflum einhverja hneigð er bara tímaspursmál hvenær við förum að lifa eftir henni, sé hún góð, verður athöfin góð, en sé hún ekki góð í augum Guðs leiðir hún til synar. Samtökin 78 segja okkur að það að efla samkynhneigð sé hið besta mál og að lifa hana út í kynlífi með öðrum sama kyns sé eðlilegt. Þetta er rangt ef við viljum trúa orði Guðs. Vandinn er hins vegar sá að almenningur, sem þekkir lítið hvað Guðs orð segir um þetta efni, hefur látið sveigja sig til fylgis við málflutning Samtakanna 78. Við, sem kristin erum ættum að vera vel að okkur í orði Guðs, en þó höfum við tekið að aðhyllast röksemdir Samtakanna 78. Finnst okkur þetta gott? Viljum við frekar aðhyllast röksemdir þeirra sem vilja lifa í andstöðu við skikkan Guðs en að fara eftir vilja Guðs. “Þið eruð vinir mínir ef þið gerið það sem ég býð ykkur,” sagði Jesús.

Afkristnunin er fellur fram sem straumþungt fljót og hrífur margar með sér, sem ekki gæta sín. Við verðum að halda vöku okkar, kristnu systkin. Látið ekki afvegaleiða ykkur. Í rökum Samtakanna 78 er höfðað til umburðarlyndis og samúðar. Þetta eru lymskufull rök. Þeir reyna að fá okkur til að fallast á líferni þeirra með því að við eigum að sýna öðrum umburðarlyndi og samúð, þetta sé spurning um sanna ást og hreinan kærleika. Halló! Eigum við að sýna samúð því sem Guð segir rangt? Eigum við að hafa umburðarlyndi gagnvart því sem spillir áformum Guðs með manneskjuna. Ef við gerum það erum við annað hvort illa upplýst eða blekkt. Hér er um alvarlegt mál að ræða, baráttu hins góða og illa, sannleika og lygi, vilja Guðs og eigingirni mannsins. Ég get ekki þagað um þetta mál lengur, ágangur Samtakanna 78 er orðinn slíkur og velferð margra er í húfi. Tökum höndum saman kæru kristnu systkin. Drögum fána sannleikans að húni. Verum ekki hrædd við að taka stöðu með vilja Guðs og orði hans.
Að lokum þetta: En hvaða afstöðu eigum við þá að hafa gangvart samkynhneigðum vinum okkar, sem lifa eftir hneigð sinni, fólki sem dagfarslega er gott fólk en virðir boð Bilíunnar að vettugi vitandi vits? Þar er vandinn. Ég mun í næsta pistli fjalla um það mál.

P.S. Mikil umræða hefur verið í þjóðfélaginu undanfarið um kristna trú og grunnskólann, um trú og vantrú og önnur mikilvæg efni. Á næstunni mun ég fjalla um þessi mál í þessum pistli mínum auk þess að skrifa um mál tengd Samtökunum 78.