Ég skrifaði um daginn pistil á heimasíðuna þar sem ég varaði við vaxandi áhrifum frá öflum sem vilja ræna þjóð okkar kristnum og biblíulegum gildum. Nýjasta skarðið í siðferðis- og velferðarmúr þjóðarinnar eru lögin um að prestar og forstöðumenn trúfélaga megi gefa saman samkynhneigð pör, en þau tóku gildi nú um mánaðmótin. Þetta eru mikil ólög. Af hverju er homosexualisminn slæmur? Vegna þess að hann er í gegn réttu eðli mannskepnunnar og sköpunarreglu Guðs. Hann er slæm fyrirmynd og býður upp á hlut sem er ónáttúrlegur og ófrjór. Tæknifrjóvganir nútímans eru hjáleiðir sem menn hafa lagt og eiga ekki að leyfast nema giftum pörum gagnkynhneigðra. Börn sem alin eru upp í “tveggja-kvenna-hjúskap” eða “tveggja-karla-hjúskap” munu óhjákvæmilega verða fyrir stríðni í skóla og meðal leikfélaga. Og það er vont að vera barn sem getur ekki sagt hver faðir þess er, sé það spurt. Ég þekki dæmi um slíkt. Nútímaþjóðfélagið er á villigötum með því að leyfa sambúð samkynhneigðra, um það er engum blöðum um að fletta.
Þjóðfélag okkar líður fyrir minnkandi áhrif sannarrar kristinnar trúar og siðferðis. Græðgin og frekjan í viðskiptalífinu og fjármálum banka og fyrirtækja kemur nú hart niður á okkur öllum. Mottóið er að græða sem mest, hvernig sem það kemur við aðra. Þetta er lögmál frumskógarins. Nú þurfum við að snúa vörn í sókn með því að boða þjóðinni dyggðugt líferni á grunni kristinnar siðfræði. Það gerum við með því að ræða slíka hluti maður við mann á heimilum, vinnustöðum, skóla og alls staðar sem tækifæri gefst. Einnig í fjölmiðlum, á blogginu og með því að halda sannleikanum að ráðamönnum –þeir meðtaka nefnilega ekki sannleikann og þekkja ekki dyggðugt lífefni með því einu að komast í valdastóla. Að lokum þetta: Hvað ætlar þú að gera til að vera salt og ljós fyrir sannleikann? Byrjaðu strax að spyrja Guð hvernig þú getir tekið þátt í baráttunni fyrir því að vinna bug á lygi og illsku og koma sannleikanum og kærleikanum að. “Áfram Kristsmenn, krossmenn…” orti séra Friðrik Friðriksson og sýndi svo og sannaði með lífi sínu að hann barðist trúarinnar góðu baráttu og vann marga sigra. Nú er komið að þér og mér! Áfram nú!

