Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Hittumst á Eyjólfsstöðum
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Hittumst á Eyjólfsstöðum

Nú er aftur að komið að verslunarmannahelgar-móti á Eyjólfsstöðum. Þar verður gott að vera eins og venjulega. Staðurinn hefur sjaldnar verið betur mannaður hvað starfsfólk varðar og aðstaðan aldrei betri. Það er því víst að vel mun fara um þá sem koma á mótið. Nú geta 50 manns gist í skóla/heimavistarhúsinu og eins er nóg pláss fyrir tjöld og annan viðlegubúnað. Vil ég hvetja sem flesta til að skunda austur á Hérað og eiga þar góðar stundir um verslunarmannahelgina. Allar upplýsingar eru veittar á staðnum í síma 471-2171.

Fræðsla fyrir fullorðna verður í höndum Ágústar Valgarðs Ólafssonar, en hann og kona hans, Kolbrún, og börnin þrjú, eru nýflutt til Eyjólfsstaða frá Minnesota þar sem Ágúst lagði stund á nám og þjálfun fyrir þá sem vilja verða leiðtogar og fræðarar í kristnu starfi. Það verður spennandi að hlusta á það sem Ágúst hefur fram að færa, en hann er áheyrilegur og skýr ræðumaður og fræðari.

Láttu ekki vegalendir eða kostnað draga úr þér að koma, þegar góðir hlutir eru í boði er mikið á sig leggjandi að vera til staðar. Munum svo eftir að biðja Guð þess að mótið verði að hans vilja og okkur til gleði, þroska og blessunar. Hittumst á Eyjólfsstöðum!