Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Hópur frá kirkjunni í hjálpar- og boðunarferð til Afríku
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Hópur frá kirkjunni í hjálpar- og boðunarferð til Afríku

Sá gleðilegi atburður varð á frídegi verslunarmanna að þá hélt 23 manna hópur fólks úr kirkjunni okkar, fólk á öllum aldri, frá Keflavík til Ceuta. Ceuta er lítill landskiki við sunnanvert Gibraltarsund í eigu Spánar og liggur hann að Marokkó. Tilgangur ferðarinnar er að aðstoða flóttafólk frá Afríku og Asíu sem fengið hefur hæli í Evrópu og er á leið til Spánar eftir aðlögun í Ceuta. Þarna mun hópurinn þjóna þessu hrjáða fólki á ýmsan hátt, bæði með matgjöfum, með því að hafa ofan af fyrir því og deila með því kærleika Guðs. Kent Langworth átti hugmyndina að þessari ferð og er hann leiðtogi hópsins en Ólafur Knútsson er honum til aðstoðar. Þátttakendur eru á ýmsum aldri eins og fyrr sagði, börn, unglingar og fullorðnir. Með þessu er Íslenska Kristskirkjan að stíga nýtt skref í boðunar- og hjálparstarfi erlendis og vonandi verður framhald á. Ástæða þess að Ceuta varð fyrir valinu er tengsl við vini okkar hjá YWAM í Finnlandi, en þau hafa áður sent fólk til Ceuta. Hópurinn mun dvelja um 2 vikur í Ceuta og á kvöldsamkomunni þann 27. ágúst munu þau deila reynslu sinni með okkur í kirkjunni. Kæru vinir, biðjið fyrir þessari ferð að hún verði til blessunar og gleði fyrir þátttakendurna og þeirra sem njóta aðstoðar þeirra.