Frábært mót á Eyjólfsstöðum
Margt mætti segja um mótið á Eyjólfsstöðum um verslunarmannanhelgina sem tókst í alla staði vel. Það einkenndist af ljúfleika. Þar var margt um manninn, börn á öllum aldri og fullorðnir, en þó aðeins færri unglingar en vant er, eflaust vegna boðunarferðarinnar til Ceuta í Afríku. Ágúst Valgarð var með skínandi góða ritskýringu á Opinberunarbókinni, börnin léku sér úti og inni, smíðuðu báta m.a. úr nýfelldu lerki og fleyttu þeim á síkjum við Grímsá. Grill og varðeldur var í rjóðrinu “uppi í” skógi. Menn veiddu fallegar bleikjur í Grímsá, fóru í gönguferðir um skóga og tún, spjölluðu saman og nutu helgarinnar. Sem sagt, frábær tími þar sem við nutum gestrisni staðarfólksins, Guðbjarts og Álfheiðar, Unnars og Öldu og Ágústar Valgarðs og Kolbrúnar, auk hollensku stúlknanna tveggja sem starfað hafa við gistiþjónustuna í sumar, þeirra Lisbetar og Judit. Í ljósi þessa móts hlökkum við til næsta móts á Eyjólfsstöðum að ári. Takk fyrir samveruna!