Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Tákn og undur –plat eða ekta?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Tákn og undur –plat eða ekta?

Við heyrum um þessar mundir mikið um að alls konar tákn komi fram á kristilegum samkomum víða um heim: “gull”-ryk, fjaðrir/fiður, gimsteinar, ljósgeislar og hver veit hvað. Hvað er að gerast? Þetta er reynar ekki nýtilkomið, ég heyrði fyrst um það fyrir mörgum árum, en þá birtist “gullryk”á samkomum hjá karismatískum hópum og kirkjum í Suður Ameríku. Menn spyrja: Er þetta frá Guði eða illum öndum? Það er erfitt að fullyrða um það, en hafa ber vara á gagnvart slíkum fyrirbærum. Mér finnst margt kristið fólk í dag vera meira upptekið af tilfinningalegum upplifunum heldur en að vanda líf sitt, iðrast synda sinna og kappkosta að helgast. Við viljum gjarnan –eins og nútíminn- eiga sem flestar “Vaáaa!!” upplifanir. Þetta viðhorf hefur færst yfir á kristið fólk. Menn virðast spenntari fyrir því að gullryk falli yfir samkomugesti, að lófar þess verði votir af heilagri (?) olíu o.s.f. heldur en að gera upp syndir sínar, vanda líf sitt, standa við orð sín, sættast við óvini sína og gera eins og Jesús hefur boðið okkur. Það er varasöm þróun.

Ég upplifði hina svokölluðu “Toronto blessun” í London árið 1995 og fór í beinu framhaldi af því til Airport Vinyard Christian Fellowship eins og það hét þá. Ég var á samkomum í Toronto söfnuðinum í nokkra daga þetta ár. Meðan ég var þar bauð ég fulltrúum hreyfingarinnar til Íslands. Í framhaldi af því komu tvisvar hópar sem fulltrúar “Toronto blessunarinnar” og við héldum ráðstefnur með þeim –þátttakendur í þeirri síðari voru um 700 ef ég man rétt og þurfti bæði að nota húsnæði Vegarins og Fíladelfíu til að rúma allt fólkið. Ég hafði því beina reynslu af Toronto blessuninni og kynntist því sem henni fylgdi og þar var margt undarlegt og umdeilt. Ég tók það góða en lét fram hjá mér fara það sem ég taldi öfga og gert “í holdinu”.

Nú er þessi hreyfing komin hingað aftur og nú virðast áherslurnar á ytri tákn enn sterkari en áður: “gullryk”, ljósgeislar, yfirnáttúrlegir gimsteinar og hver veit hvað.
Gætum að okkur. Spíritistar hér á landi leituðu eftir táknum og margt furðulegt gerðist á samkomum þeirra, einkum í byrjun 20. aldar. Þeir höfnuðu hjálpræðisverki Jesú en töldu sig vera að þjóna Guði. Það er mjó lína milli ríkis ljóssins og myrkursins. Gyðingar heimtuðu tákn af Jesú, en hann lét ekki að vilja þeirra. Jesús gerði aldrei tákn táknanna vegna. Páll postuli sagði Gyðinga heimta tákn en grikki leita að speki. Ef við verðum meira upptekin af táknum frá Guði en af honum sjálfum, getur djöfullinn auðveldlega villt okkur sýn og gert alls konar “kúnstir” sem við höldum að birti okkur dýrð Guðs, hlutir sem beina hins vegar athygli okkar frá Guði og að “Vaaáááá!” fyrirbærum. Við menn erum svo upplifanaglaðir og hrífumst svo auðveldlega. Við erum oft auðtrúa og það getur Satan vissulega notfært sér og það gerir hann til að leiða okkur í villu.

Þetta er orðið all langt, en margt fleira mætti um þetta segja. Ég læt hér staðar numið að sinni, en bæti meiru við seinna.