Þrjá síðastliðna þriðjudaga hefur hópur presta og forstöðumanna frá hinum ýmsu kristnu söfnuðum hist til bænastunda í séra Friðrikskapellu við Valsheimilið á Hlíðarenda. Tildrögin voru þau að Ómar Kristjánsson sem er mikilsvirtur kaupsýslumaður og góður kristinn bróðir hvatti til þessara stunda. Hafði hann samband við fjölmarga leiðandi aðila í kristnum söfnuðum, bæði innan sem utan þjóðkirkjunnar og bauð þeim til þessara stunda. Tilefnið eru þær þrengingar sem þjóð okkar hefur verið að gagna í gegnum síðstu mánuði eða frá því efnagslægðin skall á. Mjög margt fólk á nú í miklum vandræðum, framkvæmdir dregist saman og sumir hafa misst vinnuna, afborganir af húsnæðislánum hafa stórhækkað og dýrtíð aukist. Góð mæting hefur verið á bænastundunum og hefur fólki þótt gott að hitta trúsystur og bræður úr öðrum kirkjum.
Mikilvægur þáttur á stundunum hefur verið að iðrast frammi fyrir Guði. Við viljum taka okkur stöðu með þjóðinni og leiðtogum hennar og biðja Guð fyrirgefningar á græðgi og óhóflegri eftirsókn eftir veraldlegum gæðum og öðru sem miður hefur farið og sem að stórum hluta er ástæða þess hvernig komið er.
Síðustu tvær bænastundirnar verða í húsnæði sjónvarpsstöðvarinnar Omega á Ljósafossi og verður þeim sjónvarpað.
Við sem höfum sótt þessar bænastundir erum sammála um að þær hafa verið mjög blessaðar. Vinátta og samheldni hefur aukist á meðal okkar og hefur fólk látið í ljós einlæga ósk um að framhald verði á slíkum bænastundum.
En það eru ekki aðeins prestar og leiðtogar safnaðanna sem þurfa að stilla saman strengi og biðja fyrir þjóðinni, það erum við öll. Látum þetta fara saman: hugarfarsbreytingu í þá átt að gæta hófs í okkar eigin fjármálum og neyslu, og að stuðla að því með bænum og góðum verkum að efnahagur þjóðarinnar megi batna öllum til góðs og að við förum vel með allt sem Guð hefur gefið okkur.

