Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Hvað átt þú að gera í kreppunni?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Hvað átt þú að gera í kreppunni?

  1. Reyndu að halda ró þinni og ekki grípa til skyndiákvarðana.

  2. Notfærðu þér ástandið sem tækifæri til að fara yfir viðhorf þín og lífshætti.

  3. Minntu þig á að allt þitt ráð er í hendi Guðs þótt efnahalgslegt óveður geisi –mundu lærisveinana í bátunum þegar óveður skall á og að Jesús svaf.

  4. Settu traust þitt á Drottin, að hann muni forða þér frá því að sökkva og farast. “Verið ekki áhyggjufullir” sagði Jesús við lærisveina sína. Það á líka við þig.

  5. Farðu yfir fjármál þín og hættu allri ónauðsynlegri eyðslu –borðaðu ódýrari mat, frestaðu því að kaupa dýra hluti, frestaðu utanlandsferðum, aktu minna o.s.f.

  6. Ef þú getur ekki greitt skuldir þínar, farðu þá til lánardrottnanna og semdu við þá um nýja greisðlsutilhögun –ekki óttast þá!

  7. Hafir þú misst vinnuna, ekki verða vonlaus, þú er ekki auli heldur frábær manneskja. Biddu Guð um leiðsögn og farðu og leitaðu þér að nýrri vinnu og ekki vera of vandlátur, það er allt í lagi að “taka niður fyrir sig” um tíma, það munu koma ný tækifæri síðar.

  8. Ef þörf krefur, losaðu þig við –seldu- hluti sem ekki eru nauðsynlegir.

  9. Skiptu úr eyðslufrekum bíl í sparneytinn

  10. Ekki eyða öllu sem þú vinnur þér inn, heldur farðu að spara –leggðu eitthvað mánaðarlega inn á verðtryggðan reikning, það gæti komið sér vel síðar.

  11. Mundu einnig að blessun fylgir þeim sem leggja fram til Guðs ríkis.

  12. Jesús sagði að ef við leitum Guðs ríkis og hans réttlætis þá muni allt annað veitast okkur að auki.

Við finnum öll fyrir þessum þrengingum en eitt er víst, þær munu ekki taka líf okkar. Við munum halda áfram að lifa og öll óveður ganga yfir um síðir. Sýndu úthald meðan þetta ástand ríkir. Það er ekki það versta sem getur hent okkur að þurfa að draga saman seglin. Páll postuli sagði í hann hefði lært að búa bæði við allsnægtir og einnig að líða skort. Drottin gaf og Drottinn tók. Aðalatriðið er að halda lífi og vera trúr Drottni og þeim sem standa okkur næstir, fjölskyldu okkar, vinum okkar og systkinum okkar í söfnuðinum.

“Fel Drottni vegu þína og treystu honum, hann mun vel fyrir sjá” Sálm 37:5