Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Margir hafa tapað, sumir miklu
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Margir hafa tapað, sumir miklu

Þetta heyrir maður og það er sorglegt. Sparnaður margra hefur rýrnað og sumra tapast algjörlega. Þetta sýnir manni hve jarðneskur auður er hverfull. Nú er um að gera að æðrast ekki, missa ekki kjarkinn eða gefast upp. Það kemur dagur eftir þennan dag og ný tækifæri. Þá er um að gera að vera gætinn og setja sparnað sinn á eins tryggan reikning og auðið er. Öllum er nauðsynlegt að spara, hættum því ekki, en hugum framvegis vel að hvar við setjum peningana okkar. Betra er að fá minni vexti og meira öryggi, en mikla vexti og taka mikla áhættu. Því miður er það reynsla sumra (mín líka) að ráðgjöfum banka er ekki alltaf hægt að treysta sem skyldi v.þa. þeim ber fyrst og fremst að gæta hagsmuna síns fyrirtækis.

Þessar fjárhagshremmingar komu ekki af sjálfu sér, ýmislegt var ekki rétt gert. Margir peningamenn fóru offari og þeir hafa flestir tapað miklu en við, almenningur, höfum líka orðið fyrir tjóni, mismiklu þó. Óhófleg gróðavon og græðgi hefur einkennt þjóðfélag okkar um nokkur ár. Slíkt er Guði ekki þóknanlegt og ef við snúum ekki af þeirri braut mun hann grípa í taumana. Það hefur hann nú gert. Hann lætur ekki ranglæti viðgangast endalaust. Hið sorglega er að margir munu finna fyrir afleiðingum óráðssíunnar, líka saklaust fólk. En í öllu þessu skulum við muna að “Drottinn lætur ekki réttlátan mann verða valtan á fótum”. Drottinn mun gæta okkar og rétta hlut okkar sem óttumst hann og framgöngum í grandvarleik. Vitaskuld fáuum við öll að finna fyrir afleiðingum ófaranna, en þeir sem treysta Drottni munu standast og blómstra á ný.
Af öllu þessu þurfum við að læra að allt óðagot, eftirsókn eftir veraldlegum gæðum og sinnuleysi um andleg verðmæti er hættulegt og leiðir til tjóns fyrr en síðar. Látum því þessa krepputíma verða til þess að við forgangsröðum aftur í lífi okkar og “leitum fyrst Guðs ríkis”, setjum það sem hans er efst á listann: ræktum okkar persónulega andlega líf og einnig söfnuðinn okkar og hlúum hvert að öðru.

Ef þig langar til að lesa mikilvæga biblíutexta sem tengjast fjármálum –velferðog eða óförum, þá flettu upp eftirfarandi: Jeremía, 17:7-8, Lúk. 12:15-21, Lúk. 12:29-31, Jakobsbréf 4:13-17 og 5:1-6, Hajoskuk 3:17-19, Malakí 3:6-12 og 2. Kor.9:6-15….. Biblían fjallar mikið um fjármál og frá ýmsum hliðum, þeir staðir sem ég hef nefnt hér af handahófi eru aðeins fáir þeirra. Hér er eitt orð að lokum: “Fel Drottni vegu þína og treystu honum, hann mun vel fyrir sjá” Salm 37:5