Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Eftir áfallið koma tilfinningarnar
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Eftir áfallið koma tilfinningarnar

Við gjaldþrot bankanna urðum við forviða, síðan hálf dofin og hrygg. En nú eru aðrar tilfinningar að spretta fram meðal fólks t.d. reiði. Henni fylgja gjarnan ásakanir, einkum hjá þeim sem fjárfest höfðu í bönkunum eða áttu þar fé á ótryggðum reikningum sem þeir töpuðu. Þeim finnst þeir illa sviknir. Maður skilur að við slíkar aðstæður reiðist fólk. En gætum þess að reiðin setjist ekki að í hjartnu. Páll postuli segir að sólin megi ekki setjast yfir reiði okkar. Við eigum að fást við hana strax og taka hana réttum tökum. Þegar eitthvað tapast og fæst ekki bætt, verður maður að sætta sig við orðinn hlut. Að vera reiður langtímum saman tærir fólk upp. Svo verður maður að geta fyrirgefið, þótt það geti verið erfitt í fyrstu. Að sætta sig við orðinn hlut er ekki sama og að samþykkja hann sem góðan og gildan, nei. Gjaldþrot er aldrei gott. En viðvarandi reiði er heldur ekki góð.

Guði sé lof að trúin leggur okkur í hendur tæki til að vinna úr svona vanda. Þau eru sátt og fyrirgefning. Síðan hefst uppbyggingin. Guð vill snúa tjóni í ávinning. Hann lífgar frá dauðum. Hann gerir alla hluti nýja. Þannig er okkar Guð. Leyfum þessu áhrifamætti Guðs að verka í lífi okkar. Þá finnum við ávallt leið út úr vandanum. Guð er með okkur. Hann er með þér. Hann skilur vanda þinn og vill hjálpa þér. Varpaðu áhyggjum þínum á Drottin því að hann ber umhyggju fyrir þér. Treystu Drottni af öllu hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. Ég trúi því að þegar holskeflan hefur gengið yfir, þá munum við standa sterkari en nokkru sinni fyrr. Guð mun aldrei láta réttlátan mann verða valtan á fótum. Gerðu því ráð fyrir leiðsögn Guðs í þínum vanda og að hann muni sjá til þess að þú hafir allt sem þú þarft og meira en það, já svo mikið að þú getir gefið öðrum sem eru í vanda og þörf. Þannig gefum við Guði dýrðina og hann snýr öllu til góðs.