Árið er skjótt á enda runnið og nýtt framundan. Þá er gott að skoða stöðu sína. Er eitthvað sem þarf að breytast til betri vegar í lífi mínu? Öll finnum við eflaust eitthvað af því tagi hjá okkur. Það er auðvelt að verða fangi vanans eða tíðarandans. Þá förum við að gera hluti sem ekki verða okkur til góðs. Hvað myndir þú vilja að væri öðruvísi hjá þér? Hvaða ósiðir þyrftu að hverfa úr lífi þínu? Að hvaða leyti gætir þú tekið þig á? Ég er staðráðinn í að taka mig á á sviðum þar sem ég hef slegið slöku við eða ekki tekið framförum. Biddu Guð um að leiðbeina þér í þessu efni. Hann vill að við tökum framförum og fyrir tilstilli Heilags anda getur hann leiðbeint okkur ef við biðjum hann þess.
Þegar við tökum okkur á og náum árangri, líður okkur vel, en ef við sitjum föst í gagnlausum eða slæmum venjum verðum við óánægð. Það er á valdi okkar sjálfra hvers og eins, að lifa hamingjusömu lífi eða óhamingjusömu. Spurningin er hvort við gerum rétt eða rangt, látum Guð leiða okkur eða förum að eigin vilja.
Horfðu um öxl, skoðaðu líf þitt upp á síðkastið og ákveddu hvað þarf að breystast á nýju ári. Þegar við höfum gert það, þurfum við að gera áætlun um það hvernig við ætlum að láta af ósiðum og taka upp nýja siði. Það gerist ekki af sjálfu sér. Munið þið eftir “týnda syninum” í dæmisögu Jesú í Lúk. 15? Sá sem fór að heiman, hann “kom til sjálfs sín” (áttaði sig á slæmu ástandi sínu) og sagði: “Nú tek ég mig upp!” Þetta þurfum við líka að gera. Átta okkur á stöðu sjálfra okkar og snúa til betri vegar. Guð mun gleðjast og “taka vel á móti okkur” þegar hann sér hugarfarsbreytingu okkar og breytt og betra líferni. Látum það verða reynslu okkar á nýju ári. Gleðilegt nýár!

