Heitar tilfinningar hafa verið vaktar fyrir tilverknað frétta sem okkur berast af ástandinu á Gaza. Myndir af grátandi konum og börnum, blóðugu fólki sem verið er að flytja á sjúkrahús og drynjandi sprengjugný. Hræðilegt. Já svo sannarlega. Öll stríð eru hræðileg. Ég er stuðningsmaður tilveru Ísraelsríkis og veru þeirra í þessum heimshluta. Biblían styður rétt þeirra til landsins og allherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvarðaði að þarna skyldu Gyðingar eiga sitt þjóðarheimili. Þetta eru grundvallaratriði. Allar styrjaldirnar sem þarna hafa verið háðar allt frá stofnun Ísraelsríkis 14. maí 1948 hafa nágrannaþjóðirnar byrjað. Ísrael er umkringt þjóðum þar sem múslimar eru í miklum meirihluta og samkvæmt Kóraninum eru Gyðingar óvinir múslima og réttdræpir vilji þeir ekki taka múhameðstrú eða lúta afarkostum múslima. Heittrúar múslimar eins og hryðjuverkasamtökin Hamas og Hisbollah hafa það sem aðalatriði að tortíma Ísraelsríki og taka landið. Ísrael á ekki annan kost en að verja sig -sumir segja með kjafti og klóm. 90% gyðinga í Ísrael styðja herförina á Gaza vegna þess að þeir eru búnir að missa þolinmæðina vegna margra ára linnulausrar skothríðar yfir landamærin. Hvað myndi ríkisstjórn annars ríkis gera ef það þyrfti að þola annað eins? Það er einfalt að fordæma og gagnrýna fyrir þá sem sitja öruggir í sófanum í hlýjunni framan við sjónvarpið í Reykjavík, Oslo eða London . Mannfall er hins vegar alltaf skelfilegt og það ber að harma, hver sem í hlut á.
Friður ríkir milli Ísraels og Jórdaníu, og Egyptalands og Ísraels vegna þess að þessar þjóðir hafa viðurkennt tilverurétt Ísraels og hafa hætt að áreita þá. Það hafa Hisbolla og Hams ekki gert. Þess vegna ríkir ófriður.
Ég hvet fólk til að biðja fyrir friði og að vopnahléð sem nú ríkir haldi.

