Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Sameinumst gegn kreppunni!
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Sameinumst gegn kreppunni!

-hálfsmánaðarleg fræðslu- og samfélagskvöld í kirkjunni. Miðvikudagskvöldið 18. febrúar s.l. hófst röð hálfsmánaðarlegra samvera í Kristskirkjunni sem ætlað er að standa fram á vor. Þær eiga að gefa fólki styrk og leiðsögn til að mæta þeim erfiðu tímum sem nú eru upp runnir. Kvöldin samanstanda af fyrirlestri, kaffihléi, umræðumhópum og örstuttri helgistund í lokin. Fyrsta kvöldið kenndi Ólafur Knútsson, lögregluvarðstjóri um streitu –ástæður hennar, afleiðingar og viðbrögð. Þetta var frábært erindi -mjög upplýsandi og gagnlegt. Síðan ræddi fólk efnið í umræðuhópum og deildi reynslu sinni hvert með öðru. Fyrirkomulagið er svipað og á Alfanámskeiðunum.

Næsta fræðslukvöld verður miðvikud. 4. mars og þá mun Marteinn Steinar sálfræðingur fjalla um áföll -orsakir þeirra, eðli og viðbrögð. Það verður án efa afar fróðlegt enda Marteinn Steinar mjög hæfur í sínu fagi. Vil ég hvetja alla til að nýta sér þessa mikilvægu fræðslu og samfélag, og sækja sér þannig styrk nú þegar við öll þurfum að þola afleiðingar kreppunnar. Á þessum kvöldum sækjum við einnig leiðsögn og hvatningu í Guðs orð og bænina, en hvert kvöld endar með stuttri helgistund og bæn, eins og fyrr sagði.

Nú þurfum við, kæru vinir, að standa saman og hlúa hvert að örðu. Enginn fer varhluta af kreppunni og ástandið á eftir að versna. Komum því saman í kirkjunni í stað þess að einangra okkur heima í kvíða og svartsýni. Að koma saman, ræða málin, opna hjörta okkar og deila líðan okkar hvert með öðru er nauðsynlegt. Þannig nálgumst við hvert annað í kærleika og umhyggju og styðjum hvert annað á viðsjárverðum tímum. Láttu þig ekki vanta á þessar stundir og bjóddu öðrum með, þær eru fyrir alla og efnismeðferð slík að fólk þarf ekki að vera trúað eða kirkjuvant til að njóta þeirra. Sjáumst!