Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Jákvæðnin nær langt, en trúin lengra.
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Jákvæðnin nær langt, en trúin lengra.

Við heyrum að útvarpsstöðin Bylgjan vill þessa dagana útvarpa jákvæðu efni og andæfa gegn svartsýnishjali og neikvæðum fréttum, nóg er víst af slíku. Menn þar á bæ reyna að vera glaðir og jákvæðir. Það er gott svo. En þá er nauðsynlegt að minnast þess að jákvæðni verður að hafa traustan grunn og sanna uppsprettu annars dugar gleðin skammt. Sumir brosa framan í sjálfan sig í spegli og segja: “Mikið ertu flottur, mér þykir verulega vænt um þig!” Slíkt sjálfstal verður að byggjast á sannfæringu eigi það að hafa varanleg jákvæð áhrif –þ.e. að viðkomandi losni við neikvæða sjálfsmynd og sjálfsóánægju og geti miðlað gleði til annarra.

Það sem breytti viðhorfi mínu til sjálfs mín og sannfærði mig um að ég væri “O.K.” var sú vissa að Guð hefði skapað mig eins og ég er og elskaði mig eins og ég er og það án skilyrða. Hann hefði gefið mér margt gott sem ég ætti að nota og vera þakklátur fyrir. Þetta breytti lífi mínu. Vanmetakennd hvarf, og neikvæðni í eigin garð einnig og friður fyllti hjarta mitt. Þá gat ég hætt að vera upptekinn af því að ég væri ekki nógu góður sem slíkur, en þá tilfinningu hafði ég haft allt frá því ég var drengur. Nú er ég laus við hana. Ég þakka Guði fyrir allt það góða sem hann hefur lagt í mig og sem ég get notað sjálfum mér og öðrum til góðs og Guði til dýrðar. Þetta getur ekkert tekið frá mér, hvorki grá hár eða auknar hrukkur. Hamingjan og gæfan sem ég á í Guði er ekki tímanleg heldur eilíf.

Settu traust þitt á Guð. Treystu því, að þrátt fyrir mannlega veikleika sem fylgja okkur syndugum mönnum, þá ertu frábær sköpun Guðs. Það er jákvætt og uppspretta gleði. Beindu athyglinni að því og þakkaðu Guði. Þá getur ekkert rænt þig hamingjunni, hvorki bankahrun né minnkandi tekjur. Guð mun finna leið fyrir þig út úr vandanum vegna þess að hann elskar þig og ber umhyggju fyrir. Orð Guðs segir: “Varpa áhyggjum þínum á Drottin því að hann ber umhyggju fyrir þér.” Með það í huga getur þú brosað í spegilinn og til allra og þá er uppsrpettan hjá Guði og hún tæmist aldrei. Guð blessi þig!