Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Réttlæti í vaxtamálunum –loksins!
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Réttlæti í vaxtamálunum –loksins!

Í dag, 15. febrúar, féll mjög mikilvægur dómur í Hæstarétti sem væntanlega mun valda straumhvörfum  hjá þúsundum fjölskyldna og fyrirtækja í landinu: Lög ríkisstjórnarinnar frá því í des. 2010 um endurútreikning vaxta á ólöglegu gengislánunum voru dæmd ónothæf.

Í ljósi dómsins verður nú að endurreikna vexti af þessum lánum og þá í samræmi við upphaflega umsamda vaxtaprósentu sem í mörgum tilfellum var rúm 4%. Samkvæmt lögunum frá í des 2010 átti að nota vaxta-viðmið Seðlabankans, en þeir vextir fóru um tíma upp í rúm 20% !  Vonandi reyna bankarnir ekki að koma sér hjá því að hlýða þessum réttláta dómi. Nú þurfa þeir að endurreikna þessi lán öðru sinni og vonandi verða niðurstöður útreikninganna til að losa skuldara við mestu byrðarnar.

Eins og mjög margir einstaklingar og fyrirtæki tók Íslenska Kristskirkjan veðlán til að festa kaup á húsinu sem nú er kirkjan okkar við Fossaleyni. Vegna þess að greiðslubyrðin fór stöðugt vaxandi vegna vísitölubindingarinnar breyttum við láninu í gengistryggt lán með lágum vöxtum. Sú breyting varð til mikils góðs í byrjun og lækkuðu mánaðarlegar afborgarnir mikið og stór hluti hverrar afborgunar fór til að greiðar niður höfuðstólinn. Vegna glæframennsku bankanna og hrunsins sem fylgdi í kjölfarið féll gengi ísl. krónunnar eins og allir muna, og það þýddi að afborganir af láninu okkar ruku upp úr öllu valdi.  Við fengum lánið fryst og svo var það endurreiknað eftir að í ljós kom að gengistryggðu lánin voru ólögleg. Endurútreikningurinn lækkaði að vísu skuldina, en samt var hún óeðlilega há að okkar mati. Ef allt fer sem horfir og nýr útreikningur verður í samræmi við nýjan dóm Hæstaréttar, þá ætti skuldin að lækka enn meira og verða vel viðráðanleg.

Sagt er að þessi leiðrétting muni kosta bankakerfið tugi milljarða en verði þeim þó viðráðanlegt. Greinilegt er á fréttum í fjölmiðlum í dag að mörgum er mjög létt og horfa þúsundir skuldara fram á betri tíð. Á vikulegum bænastundum Friðrikskapelluhópsins sem hist hefur í kapellunni við Hlíðarenda á fjórða ár höfum við stöðuglega beðið Guð um að koma á réttlæti í málum þeirra þúsunda skuldara sem borið hafa þungar byrðar allt frá bankahruninu ljóst er margir þeirra hafa tapað öllu og flúið land. Nú er það réttlát krafa fólks að þessi mál verði leiðrétt og byrðinni létt af þjóðinni.