Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Jólabækurnar mínar í ár
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Jólabækurnar mínar í ár

Þær eru tvær.  Önnur heitir:  “Who ate lunch with Abraham?” og hin: “Emotionally healthy Spirituality”.

“Who ate lunch with Abraham?”
fjallar um það hvernig Guð birtist sem maður í hebresku ritningunum.  Höfundurinn, Asher, er ásamt konu sinni, Betty,  stjórnandi Revive Israel Ministries með höfuðstöðvar í Jesúsalem. Þau eru messíanskir gyðingar og áhrifamikil meðal slíkra í Ísrael og víðar. (Messíanskir gyðingar  trúa því að Jesús sé Messías –Kristur).

Svokallaðir orþódox (“réttrúaðir”)  gyðingar  trúa því ekki að Jesús sé sonur Guðs og því síður að með fæðingu hans hafi Guð birst í mannlegum líkama. Það er því stórt skref fyrir slíka að taka trú á Jesú sem Krist og son Guðs.  Þessi bók er því mjög forvitnileg og fróðlegt verður að sjá hvernig Asher tekur á þessu efni.  Bókin rekur frásagnir í hebresku Biblíunni (í henni er ekkert Nýja testamenti) um það hvernig Guð birtist þar í mynd manns eða engils við hinar ýmsu aðstæður.  Rétttrúaðir gyðingar trúa ekki að guðdómurinn sé þríeinn –Faðir, Sonur og Heilagur andi, eins og við kristnir menn.  Þeir trúa því að í guðdómnum sé aðeins ein persóna, og nafn hennar (hans) sé JHVH -nafn sem enginn núlifandi maður veit hvernig borið var fram á dögum Gamla testamentisins, enda mátti ekki taka sér nafn Guðs í munn. Það verður spennandi að lesa “Who ate lunch with Abraham?” en mig grunar að Asher telji að það sé einmitt Jesús, Guðs sonurinn,  sem borðaði morgunverð með Abraham og sem birtist aftur og aftur á síðum Gamla testamentisins.

Hin bókin, “Emotionally healthy Spirituality” er eftir  Peter Scazzero, prest og stofanda New Life Fellowship Church í New York. Scazzero gekk hreint út sagt illa, bæði í prestsstarfinu og einkalífinu. Hann var bæði reiður og útkeyrður. Hann spurði því sjálfan sig: “Kristin trú ætti að leiða af sér jákvæða breytingu, ekki satt? Hvers vegna gerist það ekki hjá mér?” Þegar hann fór að skoða líf sitt nánar, þá áttaði hann sig á því að innra með honum bjuggu margvíslegar tilfinningar sem Guð hafið ekki fengið að fást við. Peter hafði reynt að fela þessar tilfinningar  fyrir öllum öðrum. Afleiðingarnar voru þær að hann þroskaðist ekki sem skyldi tilfinningalega og var reyndar að komast í algjör þrot með sjálfan sig.

Þegar Peter geði sér grein fyrir hinum mikilvægu tengslum tilfinngalífsins og andlegs heilbrigðis, hófst hann handa við að taka á vandanum. Sú vinna varð til þess að miklar og góðar breytingar urðu hjá honum sjálfum, í söfnuði hans og í samskiptum hans við annað fólk.  Ég held að Petur Scazzero sé ekki einn um að glíma við skaddaðar og bældar tilfinningar, við erum það öll á einhvern hátt.  Verst er að loka augunum fyrir vandanum. Betra er að horfast í augu við hann og gera eitthvað í málinu.  Það getur leitt til tilfinningalegs- og andlegs heilbrigðis. Hver vill ekki að sér farnist vel á þessum sviðum? Eitt er víst, ég vil það og þess vegna ætla ég að lesa þessa bók með áhuga.

Ég vona að þú hafir eitthvað gott að lesa um jólin. Við lesum og heyrum jólaguðspjallið oft þessi jól. Það er sagan um það hvernig Guð kom inn á svið okkar syndugra manna með frelsi og frið –boðskapinn sem leysir og læknar. Gleðileg jól!