Nú eru tveir mánuðir síðan við í Kristskirkjunni breyttum samkomutímanum á sunnudögum –hættum að vera með tvær samkomur (eina að morgni og aðra að kvöldi) og erum núna aðeins með eina, klukkan hálf tvö. Reynslan af þessari breytingu er góð fram að þessu. Við tökum eftir fjölgun á samkomunum svo að þessi tími virðist henta fólki betur.
Nú eru tveir mánuðir síðan við í Kristskirkjunni breyttum samkomutímanum á sunnudögum –hættum að vera með tvær samkomur (eina að morgni og aðra að kvöldi) og erum núna aðeins með eina, klukkan hálf tvö. Reynslan af þessari breytingu er góð fram að þessu. Við tökum eftir fjölgun á samkomunum svo að þessi tími virðist henta fólki betur. Nýji tíminn er betri fyrir þá sem vilja sofa frameftir og líka fyrir þá sem eiga að mæta snemma til vinnu á mánudagsmorgnum. Og ef við förum á samkomu milli hálf tvö til ca þrjú, þá er enn tími til að fara í kaffi til mömmu eða ömmu (og afa!) eða bara heim til sín. Við starfsfólkið finnum líka að breyttur samkomutími hefur minnkað álagið á okkur. Það er munur að vera aðeins á einni samkomu en tveimur sama daginn.
En það er ekki bara tíminn sem hefur breyst. Núna, þegar við erum aðeins með eina samkomu á sunnudögum og börnin eru með, þá má samkoman ekki verða of löng, því þá verða börnin þreytt. Reynar eru þau aðeins með okkur fyrstu 15-20 mínúturnar og fara síðan í sína hópa þar sem þau fá fræðslu og skemmtun við sitt hæfi. Núna verða ræðurnar að vera stuttar –hámark 25 mínútur- og eins verða aðrir liðir að ganga fljótt og vel fyrir sig, engar langar auglýsingar eða bænir. Slíkar samkomur kölluðu þau á Hjálpræðishernum “none stop meetings” þegar ég var ungur.
Það getur verið vandi að “koma öllu fyrir” á einni samkomu, öllu sem þar þarf að vera: bjóða fólk velkomið, upphafsorð og bæn, lofgjörð, fórn (“samskot”), deildarskipt barnastarf, sérstakt tónlistaratrið ef um það er að ræða, predikun, tilkynningar, bæn fyrir innsendum bænarefnum, fyrirbænir fyrir fólki sem kemur “fram”, altarisganga og svo kaffi (eða annað) í lokin..... já, það er margt sem þarf að vera með svo að “öllu réttlæti sé fullnægt”. En við gerum okkar besta og þetta er gaman. Ef þú hefur ekki komið í heimsókn nýlega, láttu þá sjá þig, við tökum vel á móti þér.

