Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Breyting til góðs
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Breyting til góðs

Svo virðist sem breyting á samkomutíma safnaðarins yfir á hálf tvö á sunnudögum hafi verið til góðs. Samkomusóknin hefur aukist mikið og er það gott, stemmingin er meiri og fólk hittir fleiri úr söfnuðinum. Meðan við vorum með tvær samkomur á sunnudögum, aðra kl 11 og hina kl 20, urðu eiginlega til tveir söfnuðir, annar kom að morgni, en hinn að kvöldi og margt fólk kynntist því ekki öðrum í kirkjunni. Nú komum við saman á sama tíma og það er mjög skemmtilegt. Barnastarfið er öflugt og börnin eru mjög ánægð. Sem sagt, breyting á samkomutímanum hefur verið til góðs.

En það er ekki aðeins samkomutíminn sem hefur breyst, skipulagið á samkomunum hefur einnig breyst. Allt gengur nú betur fyrir sig en áður. Enginn liður er hafður of langur, þannig að það bitni á þeim næsta. Þannig samkomur kallar Hjálpræðisherinn “none stop meeting”, þ.e. engar langlokur eða dauðir punktar. Samkomurnar standa upp undir einn og hálfan tíma (eins og fótboltaleikur eða kvikmynd í fullri lengd) og vegna þess að allt er vel skipulagt og gengur vel fyrir sig er enginn tími til að láta sér leiðast. Hafir þú ekki upplifað breytinguna, ættirðu að koma og sjá –og heyra og njóta.

Framundan er mót safnaðarins í Vatnaskógi. Við erum full tilhlökkunar að vera þar saman frá föstudagskvöldinu 7. okt og fram á sunnudaginn þann 9. Þessi árlegu mót Kristskirkjunnar hafa unnið sér hefð og nú getum við ekki hugsað okkur að missa af þeim. Yfirskriftin í þetta skipti er ekki af lakara taginu, hún er einfaldlega: JESÚS! Jesús er einstakur og við getum notað allt lífið til að kynnast honum –hver hann er, hvað hann sagði og gerði. Og allt það hefur skírskotun til okkar í dag. Mennirnir hafa ekkert breyst, þótt þeir klæði sig öðruvísi en á tímum Jesú, aki bifreiðum en ekki asanakerrum og noti tölvur og ferðist um í flugvélum. Jesús er hinn sami í gær og dag og um aldir.

Ég hvet þig því til að koma í kirkjuna okkar á sunnudögum kl hálf tvö og kynnast hinum góða boðskap sem hér er fluttur og heilsa upp á fólkið í söfnuðinum. Þér mun verða vel tekið. Allir eru velkomnir hingað í kirkjuna, við spyrjum ekki um áhugamál, kynhneigð, efnahag, menntun eða neitt annað. Komdu og hlustaðu á boðskapinn sem Jesús færði okkur og leyfðu honum að snerta hjarta þitt og verða þér til blessunar.