Nú breytum við samkomutímanum
Við í Kristskirkjunni höfum verið með tvær samkomur hvern sunnudag yfir vetrarmánuðina allt frá því við fluttum starfsemina úr Aðalstræði 4 (þar sem við byrjuðum haustið 1997) í Bíldshöfða 10, en þar vorum við til ársins 2004, síðan í Fossaleyni 14 þar sem við erum í dag. Tíminn stendur ekki í stað og ekkert í mannheimi verður nákvæmlega eins í það endalausa, heldur ekki samkomutími hjá kristnum söfnuðum. Það er gott að breyta til og prófa eitthvað nýtt. Við trúum því líka að þetta muni sameina söfnuðinn betur, en í söfnuði sem er með tvær samkomur á sunnudegi, aðra að morgni og hina að kvöldi, er hætt við að myndist “tveir” söfnuðir, sem hafa ekki svo mikið samneyti hvor við annan. Nú viljum við “sameinast” og finna okkur sem eina sterka heild.
Þessu breytingum á samkomutímanum munu einnig fylgja vissar breytingar á dagskrá samkomanna. Við viljum endurskoða ýmislegt í dagskránni, gera hana fjölbreyttari með þátttöku fleiri t.d. unga fólksins okkar og tónlistarfólks sem kemur í heimsókn af og til annars staðar frá. Eins mun efni predikana haustsins fyrst og fremst snúast um orð og verk Jesú –hvað hann sagði og gerði og hvers vegna. Við viljum að predikanirnar verði hagnýtar þannig að við getum betur en áður tekið áhrifin af Jesú með okkur út í lífið þar sem margs konar vandi og viðfangsefni mæta okkur. Við köllum okkur kristin og það erum við, þess vegna þurfa áhrif Krists að vera mikil í lífi okkar, kirkjan okkar heitir heldur ekki Kristskirkja
fyrir ekki neitt
Við byrjum sem sagt hauststarfið með samkomu sunnudaginn 4. september kl hálf tvö. Þar eru allir velkomnir, hvort sem þeir eru í söfnuðinum eða ekki. Við bjóðum alla velkomna. Markmið okkar er lifandi og öfugt safnaðarstarf í vetur. Fylgstu með dagskránni hér á vefsíðu kirkjunnar og taktu þátt. Svo ertu vissulega velkomin/nn að slást í hópinn og gerast meðlimur safnaðarins, hann er opinn fyrir alla sem vilja fylgja Jesú Kristi og taka þátt í kristnu samfélagi.