Hún þýðir nákvæmlega það sama og fyrir postulana forðum: Að við fáum kraft til að vera vottar Jesú, hins upprisna frelsara, hvar sem við erum og meira segja til endimarka veraldarinnar, hvorki meira né minna. Náum við þessu? Ég veit ekki. Mér finnst við oft vera býsna værukær og sýnist skorta áhuga á að vera vottar Jesú til endimarka veraldar, a.m.k. förum við lítið út um heim í þeim tilgangi.
Hvað eigum við þá að gera? Hugsa málið. Síðan að biðja og leita Guðs. Þó svo að við getum ekki farið út í heim sem kristniboðar, þá getum við þó verið það í okkar “Jerúsalem og Júdeu” þ.e. okkar nærumhverfi. Nú eru hæfileikar okkar ólíkir. Sumir eiga auðvelt með að nálgast fólk og tala um trú sína. Það er gott og þeir ættu að gera það. Öðrum finnst það erfitt, en þeir eru þá kannski betri í að láta verkin tala –sýna með framkomu sinni og gjörðum að þeir þjóna Drottni og vilja láta aðra njóta blessunar Hans. Báðar leiðirnar eru góðar, hvor á sinn hátt.
Ég held að við þurfum að finna til vanmáttar og ráðaleysis hvað varðar hlutverk okkar að bera Jesú vitni. Slíkar tilfinningar geta knúð okkur til að gera eitthvað í málinu. Ef okkur er alveg sama, gerist ekkert. “Ef nokkurn þyrstir, þá komi hann til mín og drekki” sagði Jesús, og þar átti hann við þrána eftir Heilögum anda og krafti Guðs. Finnum við fyrir þessum þorsta? Ef ekki, biðjum þá Guð um að gera okkur þyrst. Og þegar okkur fer að þyrsta í Heilagan anda, kraft hans og áhrif, og við biðjum Jesú að fylla okkur af honum og skíra (hreinsa, baða og gegnvæta) okkur í honum. Þá mun það gerast vegna þess að Guð er ekki spar á Heilagan anda.
Eina syndin sem ekki verður fyrirgefin er syndin gegn Heilögum anda, ...ég skil það þannig að það sé að standa gegn Andanum og neita að gera það sem hann vill, en hann vill að við gerum það sem Jesús vill að við gerum. Syndin gegn Heilögum anda er þá það að forherða sig gegn því sem Jesús segir, og það er mjög alvarlegt. Látum það ekki henda okkur, en sækjumst eftir Heilögum anda og krafti hans, svo að við getum unnið það verk sem Jesús hefur boðið okkur: Að vera vottar hans hvar sem við erum og hvert sem við förum. Gleðilega hvítasunnu!

