Þessa dagana er Hvítasunnukirkjan, Fíladelfía í Reykjavík, að fagna 75 ára afmæli safnaðarins. Við samgleðjumst þeim á þessum tímamótum og sendum þeim kærar kveðjur og blessunaróskir.
Þar var lítill hópur, aðeins 12 manns ef ég man rétt, sem stofnaði Fíladelfíu hér í Reykjavík árið 1936. Árið eftir hafði hópurinn tvöfaldast. Það var ekki auðvelt að stofna nýja söfnuði á þeim árum. Þá var róttæk vinstristefna og kommúnismi áberandi í þjóðlífinu og það andaði köldu til kristinnar kirkju. En þessir brautryðjendur létu það ekki hafa áhrif á sig og gáfust ekki upp.
Hvítasunnuvakningin hófst árið 1906 vestur í Kaliforníu og bárust áhrif hennar fljótlega til Norðurlanda. Fyrsti hvítasunnusöfnuðurinn hér á landi var stofnaður í Vestmannaeyjum árið 1921.
Margir gagnrýndu komu hvítasunnuhreyfingarinnar hingað til lands og það hugrakka og einlæga fólk sem stofnaði hina fyrstu söfnuði mætti oft háði og andstöðu, en það lét ekki deigan síga og hélt áfram góða verkinu. Þrautseigja og vissa um að þetta væri vilji Drottins gaf því úthald í baráttunni.
Nú, mörgum áratugum síðar, sjáum við að þarna var hönd Drottins að verki og ekkert mannlegt afl gat aftrað áformum hans.
Við erum þakklát fyrir starf Fíladelfíukirkjunnar og hvítasunnuhreyfingarinnar hér á landi. Við þurfum á heilsteyptum kristnum söfnuðum að halda, söfnuðum sem eru trúir fagnaðarareindinu og Guðs orði. Níutíu ára saga hreyfingarinnar hér á landi sýnir að við hvítasunnumenn komu verkafúsir til starfa á akri Drottins og erfiði þeirra hefur ekki orðið árangurslaust í Drottni, það sanna dæmin: Margir söfnuðir víða um land, gróskumikið tónlistarstarf, margháttuð útgáfustarfsemi, mannúðarstarfið Samhjálp, sumarmótin í Kirkjulækjarkoti og svo mætti lengi telja.
Kæru vinir í Fíladelfíu og hvítasunnufólk um land allt, haldið áfram hinni góðu baráttu! Vinnum öll saman, þið og við í öðrum söfnuðum, að því að boða þjóð okkar hið sígilda fagnaðarerindi um endurlausnina sem er í Jesú Kristi. Guð blessi ykkur ríkulega!

