Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Nú verð ég tekinn í gegn !
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Nú verð ég tekinn í gegn !

Öll stríðin sem háð hafa verið vegna tilveru Ísraelsríkis frá stofnun þess hafa verið vegna beinna árása arabalandanna á Ísrael  eða vegna þess að þau ögruðu Ísrael með yfirvofandi árás sem neyddi Ísrael til að verða fyrri til.

Ísrael er svo lítið ríki að ef það ætti að skila hernumdu svæðunum,  þá yrði útilokað fyrir það að verjast þeim risastóra herafla sem arabalöndin umhverfis hafa yfir að ráða. Ef Ísrael skilaði t.d. “Vesturbakkanum” (heitir Samaría á máli Biblíunnar) þá yrði aðeins örmjó landræma út að Miðjarðarhafinu, mig minnir ca 15 km breið. Ísrael yrði þar þá aðeins 15 km breitt! Það yrði hægðarleikur fyrir sameinaða arabaheri að kljúfa Ísrael þar í tvennt og það er staða sem fáir nema hatursmenn Ísraels myndu fagna. “Vesturbakkinn” er eins konar stuðari milli þessarar ræmu og árinnar Jórdan en handan hennar er Jórdanía sem er enginn vinur Ísraels.

Gólanhæðirnar eru líka hluti af hersetnu svæðunum. Hún er fjallsbrúnin austan við Galíleuvatn, þaðan sem Sýrlendingar skutu látlaust sprengjum árum saman yfir samyrkjubú Gyðinga handan vatnsins, meðan þeir réðu þessum hæðum. Ef Ísrael skilaði Gólanhæðunum myndi sagan endurtaka sig og sprengjuregnið hefjast á ný.

Ísrael er lýðræðisríki en arabaríkin umhverfis eru e.k. alræðisríki eins og fréttir sýna –reyndar er almenningur í þessum löndum nú að reyna í örvæntingu að kollvarpa einræðisherrunum með misgóðum árangri.

600 þúsund íbúar Landsins helga (sem nú er Ísrael) flúðu heimili sín þegar Ísraelsríki var stofnað árið 1948 en margir urðu eftir. Leiðtogar araba sögðu þeim sem fóru að þeir myndu hjálpa þeim að snúa aftur og útrýma Ísrael. Þeir stóðu ekki við þau orð –prófuðu, en án árangurs fram að þessu.  800 þúsund Gyðingum var á sama tíma vísað, slyppum og snauðum, frá löndum Araba við stofnun Ísraelsríkis og allar eigur þeirra gerðar upptækar. Þeir flóttamenn fóru flestir til Ísraels og þar fundu þeir ný heimili en voru ekki settir í flóttamannabúðir, eins og arabalöndin gerðu hvað varðar palestínumennina sem flúðu frá Ísrael.

Arabalöndin vilja ekki búa palestínuflóttamönnum framtíðar heimili og útvega þeim land innan sinna landamæra. Þau (nágrannalönd Ísraels) hafa gert samþykkt um að láta flóttafólkið ekki fá ríkisborgararétt og varanlega búsetu innan sinna landamæra. Þau (arabalöndin)  vilja viðhalda vandamálinu, vegna þess að þau vilja hafa framtíðar ástæðu til að hatast út í Ísrael. Víðast hvar –a.m.k. í hinni kristnu Evrópu-  þar sem flóttamannnavandamál hafa komið upp á liðnum áratugum, hefur flóttamönnum verið komið fyrir meðal almennra borgara og þeir fengið að setjast að og búa til frambúðar (t.d. Kosóvó) í viðkomandi landi.

Sagt er að í Ísrael ríki aðskilnaðarstefna og landsbúum af arabískum uppruna sé haldið niðri og mannréttindi brotin á þeim. Þetta er ósatt. Mjög margir Arabar eru ríkisborgarar í Ísrael með full réttindi og fólk úr þeirra röðum er þekkt sem áhrifafólk á öllum sviðum þjóðfélagsins nema í hernum (af öryggisástæðum).

Ísrael hefur lagt nágrannalöndunum –arabalöndunum- til margvíslega tækni- og menningaraðstoð sem þau hefur sárlega vantað, en heimspressan fjallar nánast ekkert um það.

Ísraelsriki  var stofnað í framhaldi af meirihlutasamþykkt allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna  um að Gyðingar fengju þar land til að búa í til framtíðar.  Minnihlutinn, að mestu leyti arabaríki (múslimar sem hatast út í gyðinga), urðu undir í atkvæðagreiðslunni. Þetta hafa arabaríkin ekki enn getað sætt sig við!  Ísrael er eins og frímerki á fótboltavelli miðað við landflæmi arabaríkjanna, en samt gátu þau ekki séð aumur á stríðsofsóttum Gyðingum sem voru að koma úr útrýmingarherferðinni gegn þeim í Evrópu. Hver er hinn miskunnsami Alla sem þeir trúa á?

Mér finnst það siðferðileg skylda kristins fólks að styðja Ísrael í varnarbaráttu þess við hatursfulla nágranna. Gyðingar voru og ERU ENN þjóð Guðs. Drottinn hefur ekki gleymt fyrirheitum sínum til þeirra þótt leiðtogar þeirra á 1. öld og síðar hafi hafnað boðskap Jesú frá Nasaret og margir þeirra séu enn andsnúnir kristnum mönnum. Þeim á mörgum eftir að snúast hugur og þá munu þeir taka trú á Jesú sem Drottin sinn og frelsara –Messías (Krist). Við þurfum ekki að styðja pólitíska flokka í Ísrael, en það er skylda okkar, tel ég, að styðja þjóðina sem hinn útvalda lýð Guðs og boða þeim fagnaðarerindi Jesú Krists.


Jæja, ég læt þetta nægja að sinni, margt fleira mætti týna til Ísrael til stuðning, en það bíður betri tíma.  Biðjum Jerúsalem friðar. Friður sé yfir Ísrael.