Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Sjö magrar kýr
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Sjö magrar kýr

Þið munið að faraó egyptalandskonung dreymdi forðum að sjö magrar kýr stigu upp úr ánni Níl og átu sjö feitar kýr sem bitu gras á bakka árinnar. Hann skildi ekki drauminn en Jósef Jakobsson gerði það: Fyrst kæmu 7 góð ár með mikilli uppskeru og síðan sjö hallærisár með skorti og erfiðleikum. Jósef sagði Faraó að safna vel á góðu árunum til að eiga birgðir til hallærisárnna. Þrengingarnar stóðu í heil 7 ár, taktu eftir því. Frá bankahruninu hér á Íslandi eru nú rúm tvö og hálft ár og ástandið virðist lítið ef nokkuð vera að batna.

Ég held að við ættum ekki að gera okkur von um að landið rísi hratt úr öskustónni. Mér sýnist ástandið vera það slæmt, að það muni taka okkur langan tíma að ná okkur á ný. Gerum okkur því ekki óraunhæfar væntingar, það veldur aðeins enn meiri vonbrigðum. Búum okkur heldur undir áframhaldandi erfiðleika. Það gerum við m.a. með því að biðja Guð um leiðsögn, styrk og vernd. Einnig eigum við að fara vel með allt og spara það sem við getum til að mæta óvæntum útgjöldum á næstunni. Þessi mögru ár eru lærdómstími til að læra að eyða ekki um efni fram, sleppa ónauðsynlegum ferðalögum, fresta innkaupum sem mega bíða o.s.f. Í Biblíunni segir að Guð geti snúið öllu til góðs fyrir okkur. Þar stendur líka: “Fel Drottni vegu þína og treystu honum, hann mun vel fyrir sjá.” Einnig þessi orð: “Augu Drottins hvarfla um alla jörðina til þess að hann megi sýna sig máttugan þeim til hjálpar sem eru heilshugar við hann.” Það er gott að eiga slík fyrirheit þegar við erum mitt í vandanum,

Guð hefur ávallt leið út úr hverjum vanda fyrir þá sem hann elska og treysta. Líka þig! –og mig! Reyndu að hvíla í forsjá og kærleika Guðs hvað þig varðar og þú munt fá að reyna að hann heldur í þér lífinu í hallærinu og á eftir að láta þig sjá bjartari tíma.