Nú ert þú kannski hissa og jafnvel hneykslaður á afstöðu minni. Mér sýnist nefnilega margt trúað fólk vera sannfært um að “Nei” sé rétta afstaðan. Allt í lagi, en ekki dæma mig fyrir afstöðu mína. Ég hef mín rök fyrir að kjósa “Já”, og ég held að ég sé enginn bjáni, fyrirgefðu hreinskilnina. Ég gæti sett hér fram ítarlegu rök fyrir afstöðu minni, en læt það ógert, plássið leyfir það ekki. Icesave-kosningin snýst ekki um sáluhjálparatriði. Þjóðin okkar er í miklum vanda og enginn veit hvort hann verður léttbærari með því að kjósa “Já” frekar en “Nei”. Verum stillt, leyfum hvort öðru að njóta vafans, og höldum áfram að vera vinir hver sem niðurstaðan verður. Öll óskum við landi okkar alls hið besta og við ættum líka að óska og biðja Bretum og Hollendingum hins besta. Erum við ekki öll manneskjur sem Guð hefur skapað og elskar án manngreinarálits. Megi friður Guðs fylla hjörtu okkar og rósemi og stilling. Og kjósið svo rétt


