Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Mikið er gott að lesa Guðs orð
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Mikið er gott að lesa Guðs orð

Í morgun þegar ég var að lesa minn daglega biblíulestur staðnæmdist ég í Matteusarguðspjalli þar sem sagt er frá ýmsu sem Jesús gerði og sagði. Til dæmis þegar hann talaði um börnin og sagði að við skyldum sýna þeim kærleika og taka við þeim í hans nafni. Séra Friðrik Friðriksson starfaði í Reykjavík fyrir rúmum hundrað árum. Þegar hann gekk um götur bæjarins heilsaði börnum með hlýju og háttvísi eins og fullorðnu fólki. Fyrir það var hann kallaður “vitlausi stúdentinn frá Kaupmannahöfn”. Ég er viss um að í augum Guðs hefur það verið sæmdartitill. Börn voru ekki hátt skrifuð í augum fullorðinna á þeim árum, en þar fylgdi hann ekki tíðarandanum heldur orðum Jesú Krists.

Ég las líka orð Jesú um gildi fyrirgefningarinnar. Þar stendur kristin trú framar öllum öðrum trúarbrögðum. Sum trúarbrögð tala um miskunn og mildi í orði, en hjá Jesú er miskunnsemin og fyrirgefningin dagleg iðja. Hugsið ykkur hve þjóðfélag okkar væri miklum mun betra ef við hefðum þessi orð hans í huga og færum daglega eftir þeim.

Þá las ég orð hans um hjónaband og hjónaskilnaði í 19. kaflanum. Í öllum glundroðanum hvað varðar samskipti kynjanna á okkar tíma eru þessi orð Jesú eins og hreinsað gull. Þar eru línurnar skírar: Vertu trúr maka þínum!  Gættu þín á eigingirni og harðúð hjartans sem hugsar bara um eigin hag en gleymir tryggð og miskunnsemi. Hægt væri að forða mörgum hjónaskilnuðum ef fólk færi eftir þessum orðum Jesú. Og á hinn bóginn bendir hann á að ekki séu allir hæfir til hjúskapar. Ótímabær sambúð og hjónabönd eru ávísun á vandamál og skilnaði. Þar skyldum við fara okkur hægt.

Að lokum var það sagan um verkamennina í víngarðinum sem allir fengu einn denar að launum, óháð því hve lengi þeir höfðu unnið. Þeir sem unnu allan daginn og samið höfðu um þau þessi laun og fengu þau, en launasamningar hinna sem skemur unnu voru “opnir” –þeir fengu óvænt sinn denarinn hver. Var eigandi víngarðsins ósanngjarn?  Nei, hann var góðgjarn: Hann galt þeim full daglaun sem ekki áttu þau skilið. Þannig er Guð, gefur okkur það sem við eigum ekki skilið: náð og fyrirgefningu. Verum eins við aðra.