Nú er heitt í kolunum í löndunum við sunnan- og austanvert Miðjarðarhafið. Það er ekki undarlegt þótt fólkið í múslimalöndunum þar mótmæli spillingu leiðtoga sinna sem er ærin. Þetta eru miðaldaþjóðfélög þar sem valdastéttin, oft ein fjölskylda, hefur tögl og haldir og mergsýgur lýðinn. Ekki bætir úr skák að islam er karla-trú þar sem konur og börn lúta oft harðræði og kúgun. Sterkir karl-leiðtogar láta fólk kenna á valdi sínu. Og mitt milli þessara öfgaþjóðfélaga kúrir litla Ísrael, eins og milli steins og sleggju.

Sumir spádómar Gamla testamentisins benda til þess að á síðustu tímum (fyrir endurkomu Jesú Krists) muni þjóðir heims umkringja og ráðast á Ísrael. Eins og málin standa í dag í þessum heimshluta er þetta ekki aðeins hugsanlegur möguleiki heldur líklegur. Islamistar eru öfgafullir múslimar sem hata Ísrael, Gyðinga og kristna menn og stunda hryðjuverk víða um heim. Þeir ganga undir ýmsum nöfnum: Múslimska bræðralagið í Egyptalandi, Hamas á Gazaströndinni, Hisbollah í Líbanon, klerkastjórnin í Íran, Alkaída, Jihad og hver veit hvað. Þessir hópar hafa allir sömu markmið: Eyða Ísrael, þurrka út Gyðingdóm, kristni og vestræna menningu og koma á alræði múslima með sharía-löggjöf.
Þótt undarlegt sé eru vesturlönd ótrúlega umburðarlynda gagnvart islamistum, og það þrátt fyrir hryllileg hryðjuverk og glæpi sem þessi hópar hafa framkvæmt í okkar heimshluta og víðar. Ein af kröfum islamista er að Austur-Jerúsalem (gamli borgarhlutinn) verði höfuborg Palestínuríkis. Þetta er algjörlega fráleitt enda hefur gamla Jerúsalem verið (höfuð)borg Ísraels og engrar annarrar þjóðar. Nú er stjórn Obama bandaríkjaforseta að reyna að beita Ísrael þrýstingi að láta Austur-Jerúsalem af hendi við sundraða Palestínumenn og margar aðrar þjóðir leggjast líka á árnarnar hvað þetta varðar. Knesset, ísraelska þingið, samþykkti eftir sex-daga-stríðið (þegar Ísrael fékk yfirráð yfir gömlu Jerúsalem eftir tæp 1900 ár) að sameinuð Jerúsalem skyldi verða höfuðborg Ísraelsríkis um aldur og æfi. Auðvitað er þetta rétt krafa, enda gaf Drottinn Guð afkomendum Abrahams landið og borgina til ævinlegrar eignar.
Biðjum fyrir ástandinu við botn Miðjarðarhafsins að Drottinn hlífi Ísrael og forði því að loka-árásin á Ísrael verði ekki fyrr en þjóðin hefur haft tíma til að snúa sér til trúar á Jesú Krist eins og Páll postuli spáir fyrir um í Rómverjabréfinu. Biðjum þess að hinar svokölluðu arabaþjóðir umhverfis Ísrael komist ekki undir vald islamista en fái í staðinn frelsi til að heyra fagnaðarerindið og taka trú á Jesú Krist.