Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Mikið er gott að þetta er satt!
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Mikið er gott að þetta er satt!

Frásagnirnar af aðdragandanum að fæðingu Jesú og fæðingarfrásögnin sjálf eru meiriháttar. Þær vekja með okkur ljúfar og notalegar tilfinningar. Guð kom til okkar mannanna í Jesúbarninu vegna þess að hann elskar okkur og vill veita okkur af blessun sinni. Þegar skynsemistrúin tröllreið öllu fyrir u.þ.b. einni öld -en hún hafnaði öllum kraftaverkum og því sem ekki er hægt að skýra á vísindalegan hátt- þá var sumt fólk farið að halda að jólaguðspjallið væri bara falleg helgisögn, en það vildi samt halda í hana v.þ.a. hún veitti því notarlegar tilfinningar. Þannig sveif trúartilfinningin í lausu lofti slitin frá sögulegum sannleika. Þetta olli andlegum “geðklofa” margra sem vildu trúa en höfðu ekki rök gegn vantrúartalinu.

Þegar fornleifafræðin komst á skrið seint á nítjándu öld og þeirri tuttugustu fundu menn borgir og menningu sem Biblían hafði sagt frá en sem margir töldu skálskap og fantasíur. Þannig staðfesti fronleifafræðin frásagnir Biblíunnar og trúaða fólkið tók gleði sína á ný. Nú hafði það vopn í höndum gegn hinni blindu skynsemishyggju. Nýjir fundir á fornum biblíuhandritum og rannsóknir á þeim hafa einnig hrakið kenningar vantrúarmanna um að Biblían væri samansafn af goðsögnum. Það er gott að vita að við þurfum ekki að byggja trú okkar á “uppspunnum skröksögum” eins og sagt er í 1. Pétursbréfi heldur sögulegum staðreyndum.

Þegar þú því lest jólaguðspjallið, þá getur þú treyst því að þar er sagt satt og rétt frá og að boðskapurinn hefur gildi. Hann flytur þér þær gleðifréttir að Guði er annt um þig og mig, já alla menn. Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Guð kom inn í okkar tilveru í Jesú og hann er “Immanuel” –sá Guð sem er með okkur og lætur sér annt um okkur. Það er gott. Við megum því njóta ljúfra tilfinninga og gleði jólanna eins og börn, v.þ.a. frásagnir Nýja testamentisins eru sannar og hafa borist okkur óskaddaðar. Guði sé lof! Gleðileg jól !