Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Tími uppljóstrana
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Tími uppljóstrana

Wiki-leaks fékk leyndarmál Bandaríkjastjórnar frá óprúttnum tölvuþrjóti (ef ég skil þetta rétt) og dreifir þeim nú út um allt eins og sáðmaður fræi. Allt er á suðupunkti í Washington og fréttastofurnar kunna sér ekki læti við að birta leyniskjölin. Margt fróðlegt og mjög alvarlegt hefur komið í ljós og nú eru margir hræddir.  Svona er það þegar óheiðarleiki grasserar undir yfirborðinu, lygi og undirferli.  Þetta gerist vegna þess að tölvukerfi heimsins er vanmáttugt að standast árásir tölvuþrjóta. Það er eins gott að menn séu varir um sig og séu ekki að senda út á netið upplýsingar sem þeir vilja ekki að aðrir komist í. Einkalíf fólks er ekki það sama og áður. Gætum að hvað við skrifum í tölvupóstum og setjum á Facebook. En gætum jafnframt að hverju orði hvar sem við erum. Guð heyrir allt. Jesús sagði að allt sem sagt væri í myrkum herbergjum yrði kunngjört á þökum uppi. (Lúk.12:3). Þessi orð eru svo sannarlega að rætast á okkar dögum.

Nú stendur yfir tími þegar Guð virðist vera að hrista og skekja alla hluti. Þá hrynja veggir og margt misjafnt kemur í ljós. Eitt sinn voru iðnaðarmenn að brjóta niður veggi í gömlu húsi í Stokkhólmi. Í ógáti brutu þeir vegg yfir í næsta hús. Þeir náðu í ljósker og kíktu innum gatið sem myndaðist og sáu þá stóra stafla af mannabeinum og hauskúpum. Þarna höfðu frímúrarar safnað að sér dauðra manna beinum. Óhuggulegt! Þessi fundur þótti stórfrétt í Svíþjóð.

Rannsóknarnefnd alþingis hefur flett ofan af mörgu misjöfnu og margir skammast sín svo í dag að þeir hafa flúið land. Kristnir söfnuðir hafa líka farið í gegnum hreinsunareld og þar hefur verið flett ofan af mörgu ljótu. Lítum á þennan próftíma sem tækifæri til að koma hlutum í lag áður en flett verður ofan af þeim. Kirkjan (í heild)  á að vera spámannleg rödd sem bendir á ranglæti og ósóma. Höfum við brugðist því hlutverki? Er þá ekki tími til kominn að taka sig á? Ef  við sem kirkja Jesú Krists á þessu landi gerum það ekki, mun fleira misjafnt halda áfram að grassera og valda skemmdum. Látum það ekki gerast.