Fyrir ykkur sem eruð ekki búin að ákveða hverja þið ætlið að kjósa til stjórnlagaþingsins, þá ætla ég að vera svo djarfur að koma hér með tillögur um fólk. Ástæðan er sú að tímarnir sem við lifum á eru viðsjárverðir og við þurfum að vera hreinskilin og tjá skoðanir okkar. Mikilvæg kristin gildi eru dregin í vafa og jafnvel sögð til bölvunar landi og lýð. Þetta er mjög hættulegur áróður sem við verðum að bregðast við af skynsemi, kærleika en jafnframt festu. Við megum ekki þegja yfir því sem við teljum til velfarnaðar jafnvel þótt einhverjir telji okkur öfgafólk. Gótt fólk sem þorir að tjá skoðanir sínar hefur löngum fengið það óþvegið frá þeim sem sjá hlutina í öðru ljósi. Við verðum ávallt að vera kurteis og nærgætin, en hika þó ekki við að segja það sem okkur finnst rétt. Vondir hlutir gerast ef gott fólk gerir ekki neitt.
Í gær komu hingað til mín í sjónvarpsviðtal þau María Ágústsdóttir og Arnar Geir Kárason sem bæði eru í framboði til stjórnlangaþingsins, og gerðu grein fyrir skoðunum sínum. Ég vil eindregið mæla með þeim. Ég þekki Maríu betur og það til margra ára og veit að hún er mjög góður fulltrúi kristinna gilda og hefur auk þess langa reynslu af því að starfa með fólki. Arnar Geir þekki ég nánast ekkert en hann býður af sér góðan þokka. Sjálfur mun ég kjósa Maríu í fyrsta sæti á atkvæðaseðlinum.
Auk þeirra tveggja þori ég að mæla með Tryggva Gíslasyni f.v. skólameistara á Akureyri, Birni Friðfinnssyni, lögfr. og fyrrv. ráðuneytisstjóra, Jóni Val Jenssyni, guðfræðingi og Dögg Harðardóttir, hjúkrunarfræðingi. Vitaskuld er þarna fleira frambærilegt fólk sem mæla mætti með, en þar eð ég þekki ekki afstöðu þess nægilega vel, læt ég hjá líða að nefna það. Þessi meðmæli eru á mína ábyrgð en ekki skoðun Kristskirkjunnar sem slíkrar og þannig skuluð þið líta á málið. Það sem fyrir mér vakir er að benda ykkur á fulltrúa sem ég veit að munu ekki hika að standa vörð um kristin gildi. Munum að efstu sætin á kjörseðlinum eru mikilvægust (efstu reitirnir) og það efsta mikilvægast. Gætum þess að ógilda ekki seðilinn með því að skrifa ekkert nafn í efsta reitinn. Kynnum okkur vel leiðbeiningarnar um það hvernig kjósa eigi svo að atkvæði okkar verði ekki ógilt. Biðjum Guð um að fólk sem er honum að skapi verði fyrir valinu.

