Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Og áfram dunar dansinn…..
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Og áfram dunar dansinn…..

Það er skammt stórra högga á milli hvað varðar kristni í landinu.  Allir vita þetta með mannréttindaráð Reykjavíkurborgar sem vill loka á að fulltrúar kristinna safnaða komi í skólana til að kynna trúna og helgihaldið og að Gideonfélaginu verði bannað að gefa skólabörnunum Nýja testamentið. Þetta stríðir auðvitað gegn námsskrá grunnskólans en þar er tekið fram að kynna eigi nemendum boðskap Krists, helgihald kristinna safnaða og helgirit hennar. Allir eru sammála um að trúboð í grunnskólunum sé ekki leyfilegt, hvaða trú sem eigi í hlut, en um það er ekki að ræða í þessu sambandi. Þar hefur mannréttidanefndin misskilið hlutina eða reynir að beita valdi til að vinna gegn kristinni trú í skólunum.

Fjárdrátturinn í hvítasunnuhreyfingunni er svo enn eitt dæmið. Þar er um alvarlegt ásetningsbrot að ræða sem gerir málið enn sorglegra. Menn geta freistast til að taka hluti ófrjálsri hendi ef freisting kemur fyrirvaralaust yfir þá en sjá svo að sér og láta slíkt ógert eftir það,  en að leiðtogi í kirkju stundi fjárdrátt árum saman er hræðilegt.

Svo heyrir maður um enn fleiri kynferðisafbrot presta innan Þjóðkirkjunnar (Fréttablaðið 28. okt.) –þrjú til viðbótar þeim sem áður var fjallað um.  Reyndar eru þessi nýju afbrot “fyrnd” og ekki hægt að ákæra viðkomandi presta úr því sem komið er, ef ég skil hlutina rétt (einn þeirra dáinn). Þetta er ömurlegt og er vatn á myllu trúleysingja og þeirra sem hatast út í trúna.

Mér finnst að við kristnir menn þurfum virkilega að fara í naflaskoðun og taka til í okkar ranni. Við þurfum að hafa vökul augu með því að ekkert óeðlilegt sé að gerast í söfnuðunum hvað kynferðismál varðar, að enginn geti misnotað aðra á því sviði. Sérstaklega þarf að vera á varðbergi gagnvart barnaníðingum. Eins þarf að gera ráðstafanir til að fjármálamisferli geti ekki átt sér stað –efla innra eftirlit með fjármunum safnaðanna og gæta þess að enginn einn hafi með fjármálin að gera. Við eigum að gæta sjálfra okkar og eins að gæta bróður okkar og systur. Öll erum við fallvölt og veikleika vafin. Höldum vöku okkar, afsökum ekki syndina, látum af henni og lifum hreinu og góðu lífi okkur og öðrum til blessunar.