Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Frábært mót með Oehninger hjónunum
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Frábært mót með Oehninger hjónunum

Willy og Gertrud Öninger, gestirnir sem komu frá Sviss á mótið okkar í Vatnaskógi, voru geislandi af gleði og kærleika. Viðhorf þeirra var að verða okkur til sem mestrar blessunar og það fengum við svo sannarlega að reyna. Þau jusu meira segja yfir okkur  gjöfum –brjóstsykri sem var vel þeginn, ekki síst af  yngri kynslóðinni! Boðskapur þeirra snerist um að við líferni okkar sé öðrum til blessunar. Þau töluðu um blessun sem lífsstíl og sögðu okkur mörg dæmi um það hvernig Guð hefði notað þau í því sambandi. Það voru hrífandi frásögur og eftirbreytniverðar.

Það er gott að fá svona gesti í heimsókn ekki síst á þessum tímum þegar margir eru niðurdregnir og kvíðafullir. Ef það er eitthvað sem við þurfum að meðtaka, þá er það kærleikur og uppörvun og síðan að miðla því til annarra í kringum okkur –okkar nánustu og síðan annarra sem á vegi okkar verða.  Jesús sagði að á því skyldu allir sjá að við erum lærisveinar hans að við berum kærleika hvert til annars.

Munum eftir þessum hvatningarorðum þeirra Willy og Gertrud og leggjum okkur fram um að blessa aðra og sýna þeim að okkur þyki vænt um þá.

Og svo eru það þjóðmálin og kirkjumálin.  Nú hriktir í flestu og mikill reynslutími er yfir okkur kominn. Þá hrynur ýmislegt ekki  er byggt á traustum grunni. Þegar jarðskjálfti verður kemur í ljós hvort húsin hafa góða undirstöðu og eru traustbyggð. Sé ekki svo er líklegt að þau skemmist eða hrynji. Ef við vitum um veikleika í lífi okkar, fjölskyldu okkar og safnaðar, þurfum við að gera gangskör að því að þeir verði fjarlægðir og  það sem gott er komi í staðinn, annars getur farið illa ef  “stormur og steypiregn” skellur á.

Nú er markvisst reynt að vinna gegn kristnum áhrifum í grunnskólum Reykjavíkur fyrir tilstilli Samfylkingarinnar, Besta flokksins og Vinstri grænna í Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Þetta fólk vill að bannað verði að gefa grunnskólabörnum Nýja testamentið og einn þeirra sem í ráðinu situr er varaformaður Siðmenntar. Við sjáum andkristin öfl að verki og markmið þeirra er að draga úr kristnum áhrifum hjá  upprennandi kynslóð. Kæru vinir, nú er tími til að biðja sterkra bæna og sækja fram, viðurkenna trú okkar hvar sem er, boða hana öðrum í kærleika og með góðu fordæmi. Vondir hlutir gerast þegar gott fólk gerir ekki neitt. Látum það ekki henda okkur. Ef við boðum ekki trúna þar sem okkur er það fært, þá skapast þar tómarúm og inn í það mun afkristnunin sækja.  Verum því ekki hrædd við að kannast við það að trúin á Jesú sé það besta sem við eigum og látum aðra fá að vita það. Ef við gerum það ekki, bregðumst við þeim og líka Guði. Ef við könnumst ekki við Jesú fyrir mönnunum, mun hann ekki heldur kannast við okkur fyrir Föður sínum á himnum. Hver vill eiga það á hættu?