Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar um ákærur á hendur fjórum ráðherrum fyrrverandi ríkisstjórnar kom í ljós hve margir þingmannanna eru tækifærissinnar og hvernig þeir þyrmdu eigin flokksmönnum og vinum. Mikil reiði gaus upp hjá sumum þingmannanna vegna málsins og mjög heitt var í kolunum. Á næstunni munu þingmenn vera með hugann við ákæruna á hendur Geir Haarde og hugsanlega sekt hinna þriggja sem sluppu við ákærur. Eins verður eflaust rætt um það hvort Jóhanna og Össur og e.t.v. fleiri beri ekki líka ábyrgð á því hvernig fór í hruninu.
Mér finnst mjög sorglegt að þingmenn skuli eyða miklum tíma í mál sem eru óþarfi (eins og nýju hjúskaparlögin) og önnur sem mega bíða, en afleiðingar hrunsins og aðgerðir gegn þeim hafðar í hægagangi. Mér finnst mikilvægara að ráðherrar og þingmenn vinni að því hörðum höndum að forða gjaldþroti þúsunda fjölskyldna og hundruða fyrirtækja og koma atvinnulífinu aftur í gang. Hvað er þetta fólk að hugsa? Mér finnst þetta ábyrgðarleysi og skortur á samstöðu með þeim sem að ástæðulausu þurfa að þola afleiðingar bankahrunsins. Annað hvort verður þetta fólk (ráðherrar og þingmenn) að taka sig á eða að það verður að víkja. Við viljum fá fólk á þing sem vill vinna að því að endurreisa atvinnulífið, bjarga tugum þúsunda frá því að missa húsnæði sitt og koma böndum á bankana, sem virðast f.o.f. vera uppteknir af því að bjarga eigin skinni hvað sem það kostar. Það voru nú einu sinni þeir sem ollu hruninu, það eru þeir sem eiga að laga til hjá sér en ekki saklaus almenningur og gagnleg fyrirtæki og stofnanir. Biðjum Guð að hreinsa til. Hann hefur gert það áður í sögunni. Eiginhagsmunir verða nú (hvort sem er stjórnmálaflokka, ráðherra eða banka) að víkja fyrir almannaheill. Biðjum þess að Guð grípi inn í ástandið sem aldrei fyrr og breyti hugsunarhætti þeirra sem standa í gegn réttlæti og góðum málum eða fjarlægi þá ella úr embætti. Réttsýnt fólk vill sjá lausn á Ice-save málinu og röggsama framgöngu okkar í því. Réttsýnt fólk vill að skipting veiðiréttinda verði réttlátari en nú er (kvótamálið). Réttsýnt fólk vill að gjaldþrotum verði forðað og fjölskyldum bjargað. Réttsýnt fólk vill að gengistryggð lán verði færð niður til upprunalegrar upphæðar, að vísitölubinding vaxta verði afnumin (enda verðbólgan nær engin orðin) og að vextir verði sanngjarnir en ekki okurvextir eins og lengi hefur verið. Við viljum að sanngirni, réttlæti og samúð sé við lýði í landi okkar. Verði svo í Drottins nafni !

