Í “Kastljósi” Sjónvarpsins var í gærkvöldi viðtal við Úlfar Þormóðsson rithöfund þar sem rætt var við hann um nýja bók hans um trúmál “Þú sem ert á himnum”. Hann hafði lesið alla Biblíuna í heild og bókin hans var uppgjör hans við hana. Ég verð að segja að umfjöllun hans var mjög miður. Hann segir Guð Biblíunnar verða vondan Guð og miskunnarlausan. Tiltekin voru tvö dæmi úr Biblíunni sem Úlfar útlistaði. (Þið getið hlustað og horft á viðtalið á vef RUV, ruv.is undir liðnum Kastljós). Greinilegt var að Úlfar hafði ekki lagt mikið á sig til að skilja umrædda texta. Hann kom með sleggjudóma sem voru mjög villandi fyrir þá sem ekki þekkja viðkomandi sögur. Önnur var um Lot í Sódómu og framferði hans við dætur sínar. Hægt væri að gera ítarlega ritskýringu á viðkomandi sögu, en hér er ekki pláss til þess þótt gott væri. Oft er sagt að Biblían skýri sig sjálf og er það satt. Greinilegt er að Úlfar þekkir lítið til Biblíunnar (hefur aðeins lesið hana einu sinni skv orðum hans) og því áttar hann sig ekki á samhenginu hvað varðar umrædda sögu. Hann hefði betur gert það áður en hann útlistaði hana.
Þetta tilfelli er eitt af mörgum sem maður heyrir og les um þessa dagana þar sem fólk er að fjalla um Biblíuna án þess að hafa kynnt sér hana vel eða aðrar heimildir sem nauðsynlegt er að skoða eigi maður að geta fjallað um efnið af einhverju viti. Þegar menn svo fara í fjölmiðla með illa unnar niðurstöður og bera þær á borð fyrir almenning sem staðreyndir eða því sem næst, þá villa þeir um fyrir fjölda fólks sem þekkir efnið lítið. Þannig mótast svo almenningsálitið –fólk trúir þessum mönnum og telur Biblíuna vera gömul ævintýri, eins og Jónas Jónasson útvarpsmaður sagði í viðtalsþætti hjá Bubba Mortens á Rás 2 s.l. mánudag. Þetta er sorglegt.
Nú þurfum við, kristið fólk sem þekkjum Biblíuna og vitum að hún er trúverðug og sönn, að láta í okkur heyra svo að eftir verði tekið. Ef þið heyrið eða lesið níð um Guðs orð eða rangfærslur á texta bókarinnar, skrifið þá eða hringið til viðkomandi fjölmiðils eða þáttarstjórnanda og gerið athugasemdir. Ef þetta fólk fær slíkar ábendingar nógu oft er líklegt að það muni gæta sín betur næst þegar það vill fjalla um bókina góðu Biblíuna, Guðs orð.

