Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Saga UFMH - fyrri hluti
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Saga UFMH - fyrri hluti

Þetta er saga samtakanna Ungt fólk með hlutverk (UFMH) sem stofnuð voru sem sjálfseignarfélag á hvítasunnudag 6. júní 1976. Þau voru síðan lögð niður þegar Íslenska Kristskirkjan var stofnuð 4. október 1997. Ég var einn stofnenda UFMH og starfaði sem formaður samtakanna allan starfstíma þeirra. Sagan eins og hún er sögð hér er vitaskuld út frá mínum sjónarhóli og minni reynslu. Af þeim sökum er eflaust ýmislegt sem aðrir, sem komu að starfi samtakanna, sakna umfjöllunar um og/eða upplifðu með öðrum hætti en ég. Til hliðsjónar við skrifin hafði ég öll útgefin fréttabréf samtakanna sem til eru svo og bréfasafn þeirra, dagbækur mínar og minnismiða. Einnig bar ég ýmis atriði undir aðila sem á sínum tíma störfuðu innan UFMH og þekktu vel til mála.

 

Vitaskuld er hér víða stiklað á stóru og var það nauðsynlegt til þess að skrif þessi yrðu ekki allt of umfangsmikil. Vona ég að saga UFMH verði vitnisburður um það hvernig Guð kallar ófullkomið og lítt reynt fólk til starfa, gefur því hugrekki og kraft og opnar því leiðir til að boða fagnaðarerindið um kærleika Guðs í Kristi Jesú. Honum sé dýrð og þökk.

Maður nokkur sagði eitthvað á þá leið að það þekkir enginn sjálfan sig nema hann horfist í augu við fortíð sína. Sögulaus þjóð mun glatast í framtíðinni. Sá sem vill vita hver hann er skoðar fortíðina. Þar liggja svör við mörgum spruningum. Til að skilja nútíðina verðum við að átta okkur á fortíðinni.

Read More