Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Nokkur ráð í þrengingum
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Nokkur ráð í þrengingum

  1. Ekki missa kjarkinn.

Guðs orð segir okkur að það muni koma örðugar tíðir, lögleysi og ringulreið á ýmsum sviðum. Þetta sagði Jesús og postularnir töluðu eins. Látum því ástandið í dag ekki koma okkur á óvart. “Djöfullinn er stiginn niður til ykkar í miklum móð, því að hann veit að hann hefur nauman tíma”, segir í Opinberunarbókinni 12:12. Í versinu á undan stendur: “Þeir (hinir trúuðu) hafa sigrað Satan fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns.” Hvað sem á gengur þá getur hið illa ekki náð völdum í heiminum. Það getur skaðað þá sem gleyma eða hafna Guði, en Guð hefur síðasta orðið og ekkert gerist á vitundar hans og leyfis. Ráð hinna trúuðu er í Hans hendi.

  1. Hafðu markmiðið fyrir augum

Jesús lét ekkert stöðva sig á leiðinni til Golgata og upprisunnar. Hann ætlaði að ná markmiðinu með komu sinni til jarðarinnar. Hvert er markmiðið sem Guð hefur sett fyrir þitt líf ? Hver er næsti áfangi á leið þinni að því marki? Hafðu það hugfast og stefndu að markinu. Við megum ekki hvika frá köllun Guðs fyrir líf okkar, ekki heldur þegar á móti blæs og allt virðist vera okkur andsnúið. Þá ætti ásetningur okkar því heldur að styrkjast.

  1. Erfiðleikarnir tefja þig kannski en stöðva ekki

Abraham mætti ýmsu andstreymi en hann veiklaðist ekki í trúnni. Á gamals aldri eignaðist kona hans Sara, soninn Ísak, barn fyrirheitisins. Jósef fékk köllun um að verða leiðtogi, en lenti í staðinn í fangelsi árum saman. En að lokum varð hann mikill leiðtogi, já, næstráðandi Faraós. Kreppan er eins og dýflissa fyrir marga, en þú munt komast út og þá færðu tækifærið sem Drottinn lofaði þér.

  1. Notum erfiðleikana til að þjálfa þolinmæði og vaxa í trausti til Drottins

Þolinmæði er lífsnauðsynlegur mannkostur. Án hennar gerum við mörg mistök í fljótfærni. Eina leiðin til að læra þolinmæði er að upplifa andstreymi. Við þær aðstæður getum við tekið þá erfiðu ákvörðun að slá ekki af, gefast ekki upp heldur þrauka. Að biðja Guð um þolinmæði er að biðja hann um erfiðleika. Það er allt í lagi, Hann vill að við þroskumst og tökum framförum. Haltu áfram að biðja þannig ! (innst inni viljum við það þó ekki...! en það er eina leiðin).

  1. Undirbúðu næstu sókn þannig að þegar ástandið skánar sértu tilbúinn

Gyðingur að nafn Frankl var fangi í útrýmingarbúðum nasista. Hann var í vonlausri aðstöðu, en í stað þess að gefast upp í eymd og sjálfsvorkunnsemi, bjó hann til sinn eigin hugarheim og þar gerði hann áætlanir um það sem hann ætlaði að gera þegar hann losnaði (bjartsýni!) úr fangabúðunum. Hann bjargaðist! Og þegar hann fékk frelsið var hann með framtíðaráformin tilbúin og náði frábærum árangri. Þetta skulum við gera ef við um stundarsakir erum eins og í fangelsi kreppunnar. Notum tímann til að fara yfir líf okkar og starf og leitum Drottins með það hvað við eigum að gera þegar tækifærin koma á ný. Það er að lifa í trú. Biblían segir að án trúar sé ómögulegt að þóknast Guði. Þóknumst Guði og sýnum honum traust. Hann mun launa okkur það!