Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Fjölskylduvika á Eyjólfsstöðum og hvernig getur maður haft stjórn á tilfinningum sínum?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Fjölskylduvika á Eyjólfsstöðum og hvernig getur maður haft stjórn á tilfinningum sínum?

Bíddu nú við, hvað á þetta tvennt sameiginlegt? Ekki svo margt og þess vegna fyrst þetta um fjölskylduvikuna:

Um miðjan júní verður fjölskylduvika á Eyjólfsstöðum, starfsmiðstöð Kristskirkjunnar á Héraði. Sérstök auglýsing um vikuna verður hér á heimasíðunni. Ég ætla að fara og hvet alla sem mögulega geta til að fara. Þarna verðum við saman í marga daga, gerum ýmislegt skemmtilegt, leikum okkur með börnunum, eigum uppbygglegar stundir, borðum góðan mat, förum að veiða, byggja kofa, í kappsiglingu og allt mögulegt. Hvað er hægt að hugsa sér betra og dvalarkostnaði hafa verið settar skorður –já, svo sannarlega (sjá auglýsinguna) . Drífum okkur á fjölskylduvikuna og eigum þar saman góða daga á yndislegum stað. Ekkert almennt mót verður um verslunarmannahelgina á Eyjólfsstöðum, bara VISBO fyrir ungafólkið, nú er því tækifærið, grípum það! En snúum okkur nú að tilfinningunum:

Stundum gerast hlutir í umhverfi okkar sem valda okkur erfiðum tilfinningum svo sem sorg, gremju og jafnvel reiði. Það getur stafað af ranglæti sem við verðum vitni að eða þá að kristið fólk kemur fram með þeim hætti að maður verður bæði hryggur og sár. Ástæðurnar geta líka verið margar aðrar. En hverjar sem þær eru, þá er ekki gott að vera gramur og hryggur langtímum saman. Það dregur mann niður og hefur slæm áhrif.

Margt fólk er reitt um þessar mundir og ástæðurnar ærnar. En það er hættulegt að beina sjónum stöðugt að því sem er neikvætt. Hvort sem það er klúður stjórnvalda eða bankamanna eða slæm fyrirmynd kristinna leiðtoga. Ef við gerum það, þá eigum við á hættu að verða sjálf neikvæð og örg og hafa slæm áhrif á þá sem við umgöngumst. Það gengur ekki. Þess vegna er mikilvægt að við áttum okkur fljótt á því ef við erum að verða gröm og niðurdregin og bregðumst rétt við. En hvernig?

Hugsaðu um kærleika Guðs og náð til þín persónulega. Mundu að hann elskar þig og vill gleðja þig og fylla hjarta þitt firði sínum. Já, hugsaðu um Guð og allt það góða sem hann hefur gefið þér og er þér. Beindu huga þínum frá hinu neikvæða og að hinu jákvæða. Það þarf ekki að vera svo lengi, en við að gera það, kemur friður, öryggi og gleði inn í hjarta þitt. Í heiminum hafið þið þrenging, sagði Jesú, en hann sagði líka, minn frið gef ég ykkur. Hvort viltu hugsa um, hlusta á og horfa á? Ef maður horfir á eitthvað fallegt hefur það jákvæð áhrif á mann, neikvæðir hlutir draga mann niður. Hugsið um það sem er hið efra, sagði Páll , og átti þá við það sem tilheyrir Guði og hans ríki. Og Páll postuli minnti okkur á að vera glöð “í Kristi” …þ.e. þá beinum við huga okkar til hans og þá vaknar gleði með okkur og friður hans streymir inn í sálina. Þannig fáum við styrk til að takast á við allt það sem vill draga okkur niður.