Nú á tímum alls konar hruns, tognar á mörgum hjónaböndum og sum slitna, því miður. Nú er tími fyrir okkur kristið fólk sem viljum fylgja orðum Drottins Jesú og postula hans að láta ekki tíðarandann og slæmar fyrirmyndir annarra leiða okkur afvega. Sérstaklega er ábyrgð presta og forstöðumanna safnaðanna hér mikil. Nú bregðast krosstré sem önnur tré í þessum efnum. Fólk lætur meira segja vel því og hrósar í hástert prestum sem skilja og drífa sig í annað hjónaband. Þetta er ekki gott. Þetta er slæm fyrirmynd og verður til þess að margir lenda í efasemdum um eigið hjónaband og hugleiða skilnað.
Það er ekki auðvelt að vera í hjónabandi og sumir ættu alls ekki að gifta sig. Það að skilja við maka sinn er grafalvarlegt mál og nær alltaf mjög sársaukafullt, ekki síst fyrir börnin. Stundum er skilnaður óhjákvæmilegur, en ég felli mig ekki við orðasambandið “að hjón vaxi hvort frá öðru”. Vöxtur er hægur og margt er hægt að gera til að beina vexti í rétta átt sé vilji fyrir hendi. Það er líka hægt að vaxa saman í hjónabandinu, gera það betra og betra. Það þekki ég af eigin reynslu.
Nýja testamentið talar skýrum orðum um hjónaband presta. Þeir eiga að vera einnar konu eiginmenn. Ein kona fyrir lífstíð, það er viðmiðið, nema annar makinn látist, þá er endurgifting heimil. En hafi menn skilið ættu þeir að vera ógiftir það sem eftir er. Þannig talar Páll postuli. Það getur verið erfitt, en það er alltaf erfitt að láta skynsemina ráða ef tilfinningarnar toga mann í aðra átt.
Frjálslyndið í þessum efnum veldur mér mikilli sorg, ekki síst þegar menn hrósa sér af því að fara á svig við orð Guðs eða jafnvel beint gegn því. Við verðum að taka okkur á og breyta þessari þróun í rétta átt, annars lendum við í miklum ógöngum. Kæru kristnu vinir, tökum ekki undir tal þeirra sem afsaka það sem rangt er jafnvel hrósa þeim sem slíkt gera. Nú reynir á tryggð okkar við orð Drottins og postula hans. Þetta eru reynslutímar þegar allt er skekið. Þá fær aðeins það staðist sem byggt er á orðum Drottins. Gleymum ekki sögunni um húsið á bjargi og hitt á sandi. Þar var málið að fara eftir orðum Jesú. Byggðu líf þitt og hjónaband á bjargi –orði Guðs og þér mun farnast vel.

