Mousab Hassan Yousef er 32 ára gamall sonur eins stofnenda Hamas-hreyfingarinnar í Palestínu. Eins og margir vita eru Hamasmenn heittrúar múslimar og mjög herskáir gegn Ísrael. Dag einn fyrir nokkrum árum stóð Mosab við Damaskushliðið í gömlu Jerúsalem. Þar hitti hann fyrir tilviljun ungan breska ferðamann sem bauð honum á bibilíulestur í KFUM-húsinu í Jerúsalem. Hann hafði engu að tapa og sló til -hví ekki að heyra hvað þetta kristna fólk hafði að segja? Þetta var upphafið að því að Mousab komst til kristinnar trúar. Hann hafði verið nokkrum sinnum í ísraelskum fangelsum vegna þátttöku í götuóeirðum á herteknu svæðunum. Þar hafði hann kastað grjóti að ísraelskum hermönnum, kveikt í hjólbörðum og fleira í þeim dúr. Vegna forystu í Hamas var faðir hans líka inn og út úr ísraelskum fangelsum. Öll fjölskyldan hataði gyðinga og Ísraelsríki.
Saga Mousabs er lyginni líkust. Hann fékk að kynnast innviðum Hamas. Honum ofbauð ofbeldi leiðtoganna gegn á lægra settum Hamas-liðum. Tvískinningur þeirra sáði efasemdum hvað varðaði trú hans á Allah og Kóraninn. Breski ferðamaðurinn, fyrrnefndi, gaf honum Nýja testamentið. Þegar hann las orð Jesú um að elska óvini sína, sá hann að göfugri afstöðu til fólks var hvergi að finna. Það varð til þess að hann frelsaðist. En ný sýn hans á gildi einstaklingsins, hverrar þjóðar eða trúar sem hann var, leiddi til þess að hann samþykkti að aðstoða Ísraelsku leyniþjónustuna við að koma í veg fyrir hryðjuverk og sjálfsmorðsárásir palestínumanna í Ísrael. Vegna hættu á að Hamas kæmist að njósnastarfi hans fyrir Ísrael, flutti hann til Bandaríkjanna og þar býr hann nú. Vegna þess að hann sneri baki við islam og Hams á hann nú á hættu að verða drepinn, en hann óttast ekki dauðann. Nú hættir hann lífinu til að vitna um trú sína á Jesú. Hann hefur skrifað sögu sína í nýútkominni bók: Son of Hamas. Fróðlegt er fyrir okkur vesturlandafólk að kynnast í bókinni innviðum Hamas og því trúarlega ofstæki og tvískinnungi sem þar ríkir. Bók Yousefs dregur upp skýra mynd af því hatri og mannvonsku sem alið er á meðal heittrúaðra múslima í garð andstæðinga þeirra, ekki síst Gyðinga og Ísraelsríkis. Son of Hamas ætti að vera “skyldulesning” fyrir þá sem vilja fá skýra og sanna mynd af ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafsins. Ég hvet fólk eindregið til að panta sér eintak. Það er auðvelt gegnum vefverslunina Amazon.
Sál frá Tarsus mætti Jesú hinum upprisna á veginum til Damaskus. Mousab Hassan frá Ramalla, mætti Jesú hinum upprisna í trúuðum ungum ferðamanni við Damaskushliðið í Jerúsalem. Báðir sneru frá ofstæki sínu og hatri og gáfu Jesú Kristi hjarta sitt -Hann gaf þeim í staðinn náð sína, elsku og mannkærleika.

