Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Já eða nei við Ice-save lögunum?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Já eða nei við Ice-save lögunum?

Hvað skyldi Guð vilja að ég kjósi? Er honum kannski alveg sama? Nei, örugglega ekki. Guð er aldrei hlutlaus í málum sem varða réttlæti og velferð fólks.

Í fyrsta lagi, ég kaus.  Að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu er sjálfsagt mál. Þannig undirstrikum við þann rétt sem hver og einn hefur, að mega hafa skoðun og setja hana fram. Það styrkir lýðræðið og tjáningarréttinn.  Frelsið til að tjá sig er dýrmætt, látum ekki taka það af okkur.  Já, ég kaus og sagði nei. Ástæðurnar eru þessar:

  1. Engin lög, hvorki á Íslandi né í Evrópusambandinu skylda íslensku þjóðina til að axla bankahrun.
  2. Samninganefnd ísl. ríkisins samdi af sér og lögin sem urðu til í framhaldinu eru ólög.  Samningaviðræðurnar sem nú standa yfir sýna það.  Við þurfum betra samkomulag.
  3. Fámenn samninganefnd misviturra (fyrirgefið lýsinguna) manna frá Íslandi á ekki að fá að binda okkur  né afkomendur okkar á skuldaklafa um ókomin ár.  Þjóðin öll hlýtur að þurfa að samþykkja slíka byrði.
  4. Málsstaður Íslands hefur ekki verið kynntur nægilega fyrir Bretum og Hollendingum né heldur öðrum þjóðum sem þurfa að þekkja til málsins.  Fjöldi fólks í útlöndum heldur að við, Íslendingar, séum misindismenn sem “viljum ekki borga”.
  5. Eignir íslensku bankanna (sem hrundu) í Bretlandi og Hollandi eiga að taka á sig tapið og greiða innistæðueigendum í þessum löndum, en ekki við, almenningur á Íslandi. Þessir bankar voru einkahlutafélög en ekki í ríkiseigu.

 

Vitaskuld eiga Íslendingar að ræða málin við bresk og hollensk yfirvöld og reyna að gera eins gott úr hlutunum og hægt er, og ganga “auka mílu” sé þess þörf.  En þessar þjóðir mega ekki krefjast þess að sú míla verði að hundrað eða jafnvel þúsund mílum. Ég er viss um að Jesús (sem sagði þessa líkingu)  hefði ekki tekið undir það !

Hvernig sem Icesave-málið fer og önnur skyld leiðindamál, þá biðjum Guð þess að snúa öllu til góðs, bæði fyrir okkur og útlendingana. Það bæði getur hann og kann –og vill, trúi ég.