Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Verum sanngjörn hvert við annað
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Verum sanngjörn hvert við annað

Af því að við erum öll með brotalöm syndarinnar í hjarta, höfum við tilhneigingu til að vera kröfuhörð og dæmandi á aðra. Sumir meira, aðrir minna, en enginn er undanskilinn. Þetta viðhorf getur eyðilagt samskipti okkar við aðra og gert okkur sjálf gröm og leið.  Þessi vandi mun fylgja okkur allt lífið. Við erum sífellt að kynnast fólki sem er öðruvísi en við, hefur ólík viðhorf,  venjur og væntingar. Aftur og aftur koma upp aðstæður sem geta valdið ágreiningi. Eitt er mjög mikilvægt í þessu sambandi: Reynum að skilja hvers vegna aðrir vilja hegða sér og gera hlutina á annan hátt en við sjálf. Leyfum þeim að vera öðruvísi. Gerum ekki kröfur um að þeir verði eins og við sjálf. Ef samskiptin eru náin vegna vinnu, fjölskyldu, nábýlis eða annars og upp koma vandamál í samskiptum, þá er nauðsynlegt að ræða saman með opnum huga og án fordóma. Hlusta og aftur hlusta. Þetta er vandasamt en þó eina leiðin. Þannig getum við skilið í hverju við erum ólík. Síðan er að stíga skref til mót við hinn/hina. Þetta þurfa báðir aðilarnir að gera ef vel á að vera. Það er leið skilnings og aðlögunar. Páll postuli orðaði þetta þannig: “Lítið ekki aðeins á eigin hag, heldur einnig annarra”, (Fil.2:4).

Stundum finnst okkur við hafa allan réttinn okkar megin og hafa efni á að vera gagnrýnin. En er það svo víst? Erum við búin að kynna okkur hina hliðina til hlítar? Fyrr en svo er, getum við ekki “kveðið upp dóm” yfir öðrum. Svo einfalt er það. Verum þess vegna gætin þegar við gagnrýnum aðra. Oftast er best að láta gagnrýnina lönd og leið, a.m.k. ef málið varðar okkur lítið. Flækjum okkur ekki í vandamálum annarra. “Hver hefur sett mig skiptaráðanda yfir ykkur?” spurði Jesús mann einn sem kvartaði við hann um ósanngjarna skiptingu arfs sem hann og aðrir nákomnir hlutu.

Ef við erum kröfuhörð, stjórnsöm, smámunasöm og ósveigjanleg í samskiptum, þá missum við vini. Það er ekki lífsstíll lærisveina Jesú Krists og Guðs ríkis. Þar er fyrirgefning, umburðarlyndi og skilningur lykilatriði. Reynum að hafa það í huga og lifa eftir því. Þá verður lífið betra og ánægjulegra og þá eignumst við marga vini.