Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Ég verð að viðurkenna það….
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Ég verð að viðurkenna það….

….að síðustu ár hefur jólahaldið vakið blendnar tilfinningar með mér. Það hefur verið skrýtið að horfa upp á vaxandi afkristnun en jafnframt aukin umsvif í tengslum við jólin. Helgi jólanna í mínum huga snýst fyrst og fremst um það sem gerðist í Betlehem þegar Jesús fæddist. Þar var nótt og fátækir hirðar gættu hjarðar sinnar á Betlehemsvöllum. Í sjálfum bænum var ung og fátæk kona að eignast barn við frumstæðar aðstæður í dimmu og rykugu gripahúsi. Enginn skarkali, glaumur eða glys. En samt var nóttin heilög og englar boðuðu frið meðal þeirra sem Drottinn hafði velþóknun á. Við kunnum söguna. Þetta eru jólin fyrir mér: Friður, ró, helgi, lítillæti og nærvera Guðs. Þessa mynd vil ég varðveita í hjarta mér. Glaumurinn og hávaðinn sem fylgir jólahaldi nútímans, a.m.k. á yfirborðinu, er allt annars eðlis.

Við finnum þetta öll. Okkar er að velja. Viljum við upplifa heilög og friðsæl jól við jötu frelsarans –og það gerist í mínu eigin hjarta og með vinum sem þrá hið sama- eða viljum við gleyma okkur í hrundansi neyslusamfélagsins? Ég trúi því að við viljum hið fyrra. En þó svo að við kjósum helgi og frið, þá verðum við á einhvern hátt að taka þátt í hinu líka, umstanginu, kaupskapnum, flýtinum og öllu sem fylgir. Það verður vart umfúið, nema við séum komin á elliheimili. Þegar foreldrar mínir voru komnir á elliheimili virtust þeir njóta jólanna betur en ég sem var alltaf á hlaupum. Þannig er nú það.

Að lokum þetta: Verum jákvæð og glöð. Látum ekkert ræna okkur gleðinni og þakklætinu yfir komu frelsarans. Gætum þess að auglýsingaflóðið og yfirborðsmennskan geri okkur ekki gramt í geði. Snúum augum okkar að Jesú og þeirri staðreynd að hann kom og með honum Guðs ríki þar sem er réttlæti, friður og fögnuður í Heilögum anda.

Gleðileg jól!