
Eins og mörg ykkar vita hefur komist á mjög gott samband og samstarf milli leiðtoga CCfC í Sviss og samkirkjulega hópsins sem hittist reglulega til bæna í séra Friðriks kapellu í Reykjavík. Svisslendingarnir hafa mikinn áhuga á að styðja okkur með fyrirbæn og ýmsum örðum hætti til að við getum á áhrifaríkari hátt unnið að andlegri og þjóðfélagslegri endurnýjun í kjölfar kreppunnar hér. Á ráðstefnunni voru flutt mörg mjög góð erindi, mikið var beðið og rætt um hvernig kristnir leiðtogar á öllum sviðum þjóðfélagsins í Evrópu geti unnið saman að endurnýjun kristninnar í álfunni. Sérstakur dagskrárliður var helgaður Íslandi og fundum við mikinn og góðan stuðning frá því fólki sem þarna var. Ekki er hér pláss til að fjalla frekar um ráðstefnuna, en við, Íslendingarnir, sem hana sóttum, nutum þess að vera saman, efla vináttu okkar og samfélag. Ég er viss um að þarna var stigið mikilvægt skref í þá átt að ólíkar kirkjudeildir hér á landi geti unnið betur saman og sýnt einingu gagnvart þjóðinni. “Allir eiga þeir að vera eitt,” sagði Jesús um lærisveina sína. Ég trúi að þar hafi Jesús fyrst og fremst átt við einingu okkar í eftirfylgdinni við hann, innbyrðis kærleika og samstöðu. Við þurfum ekki öll að vera eins hvað varðar helgisiði og sér-áherslur, en Drottinn býður okkur að vera eitt í anda undir forystu sinni. Þá mun þjóð okkar hlusta á boðskap okkar.

