Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Ráðstefna í Sviss
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Ráðstefna í Sviss

Fyrir 500 árum fæddist drengur sem fékk nafnið Jóhnn Kalvin. Þegar hann hafði aldur til varð hann einn mesti siðbótarmaður kristinnar kirkju ásamt Marteini Lúther og fleirum slíkum hetjum. Áhrifa Kalvins hefur gætt víða um heim en einkum þó í Sviss. Dagana 4. – 7. desember verður haldin ráðstefna í Genf í Sviss til að halda upp á 500 ára fæðingarafmæli hans. Nokkrum prestum og forstöðumönnum hér á landi hefur verið boðið að sækja þessa ráðstefnu og verð ég einn þeirra. Það verður spennandi að kynnast starfi Jóhanns Kalvins og kirkjudeildinni sem spratt upp af starfi hans og annarra samherja hans. En ekki verður síður gott að eyða þessum dögum með því góða fólki sem býður okkur að vera með í atburðinum, kynnast því og efla tengslin við það. Svo trúi ég að samskipti okkar íslendinganna þessa daga verði til góðs í þá átt að efla vináttu og skilning þvert á kirkjudeildir. Samkirkjulegt starf hér á landi hefur farið vaxandi á síðustu áratugum en það á þó enn langt í land að verða það sem ég trúi að Drottinn vilji að það verði.

Leiðtogaráðstefnan sem haldin var í Neskirkju í síðasta mánuði var frábært tækifæri til að hitta fólk úr öðrum kirkjudeildum, lofa Guð saman og uppbyggjast sameiginlega. Þessu þarf að halda áfram. Ferð okkar prestanna og forstöðumannanna til Sviss er liður í þessari þróun. Biðjið fyrir því að hún verði árangursrík og til eflingar Guðs ríkis með þjóð okkar.