Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Haldið ykkur fast!
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Haldið ykkur fast!

Þegar við erum í flugvél sem lendir í ókyrrð, á skipi sem hreppir storm eða bíl á ósléttum vegi, þá reynum við að halda okkur fast. Það eru eðlileg viðbrögð til að halda okkur í sætinu eða fara ekki fyrir borð. Ef flugvélin hrapar, bíllinn fer út af veginum og veltur eða skipið sekkur, þá er ekki víst að haldið komi að haldi!  Að halda sér fast  eru sjávirk viðbrögð við hættu. Núna er þjóðarskútan í ólgusjó og enginn veit hvernig fer. Við gætum orðið algjörlega gjaldþrota. Ég heyrði í fréttum í gær að allir tekjuskattar þjóðarinnar muni á næstu árum fara í að borga vexti af skuldum ríkisins! Hvað verður þá eftir til að viðhalda velferðarkerfinu?  Já, útlitið er dökkt, við skulum ekkert reyna blekkja okkur með fagurgala. Við verðum að búa okkur undir hið versta, en njóta þess svo ef ástandið verður betra en útlit var fyrir í fyrstu.

Það sem nú er mikilvægast, er að halda sér þétt að Guði. Það gerum við með því að biðja reglulega, tala við Guð um líðan okkar, stöðu og það sem framundan er. Síðan þurfum við að sækja huggun í Guðs orð, vegna þess að í Biblíunni eru margar frásagnir um fólk Guðs sem komst í hann krappan, já, lenti í miklu meiri erfiðleikum en við stöndum í nú eða virðumst eiga í vændum. Dæmi: Jósef í 1. Mósebók, Job í Jobsbók, Davíð sem var ofsóttur og  rekinn út í eyðimörk, Ísrael á dögum herleiðinga, frumkirkjan á tímum ofsókna o.s.f.   Lestu um það hvernig Guð hélt lífi í fólki í hallæri og á stríðstímum.  Og svo þurfum við að þjappa okkur nær kristnum bræðrum og systrum, rækja kirkjuna okkar vel og uppbyggjast með þeim sem þar eru og eru líka að ganga í gegnum erfiða tíma. Það versta er ef við einangrumst.

Ef við þannig styrkjumst í trúnni. þá eflum við okkur gegn kvíða, ótta og örvinglun. Við leitum Guðs og fáum ráð og huggun hjá honum og við leitum líka hvert til annars í vandanum og finnum þar hvatningu og stuðning –líka í formi matar, ef þörf krefur eða annarra efnislegra gæða.

Haltu fast því sem þú hefur til að enginn taki kórónu þína, segir í Opnberunarbókinni, 3. kafla. Kórónan er trúin og lífið í Guði. Láttu ekki stórsjó eða ókyrrð kreppunnar ræna þig henni en stattu stöðugur. Sá sem stöðugur stendur allt til enda mun erfa lífið og landið –öll þau gæði sem Guð hefur heitið okkur. Hann mun reynast trúr og halda lífinu í okkur í hallæri.