Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Besta ráðstefna um árabil
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Besta ráðstefna um árabil

Ég fór á leiðtogaráðstefnuna Global Leadership Summit sem haldin var hér í Reykjavík dagana 6.-7. nóv s.l. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Það sem mér fannst standa uppúr var mjög sterk og viturleg hvatning til okkar allra sem þarna vorum og vinnum að framgangi kristinnar kirkju. Bill Hybels sem var hvatamaður að ráðstefnunni og aðalræðumaður var hreint frábær og sama má segja um nær alla sem tóku til máls. Þetta fólk hélt athygli minni allan tímann og er þá mikið sagt. Margar ráðstefnur hef ég sótt í áranna rás en þessi var ein sú allra besta. Næsta ráðstefna af þessu tagi verður hér eftir 1 ár –ekki láta þig vanta!

Þarna voru um 200 manns úr nær öllum kirkjudeildum hér á landi og var vissulega ánægjulegt að hitta aðra meðlimi “ættarinnar” . Neskirkja ljáði húsnæði sitt undir ráðstefnuna og var allur aðbúnaður og skipulag til fyrirmyndar. Takk, öll þið sem gerðuð þetta mögulegt!

Efni ráðstefnunnar lét mig ekki ósnortinn og ég finn að hún veitti mér nýjan hugmóð, styrkti fyrri viðhorf og gaf mér nýjar hugmyndir. Við kristið fólk erum (ekki bara “eigum að vera”) salt og ljós í samtíð okkar og eigum því að ná út til fólkisins sem er allt í kringum okkur. Það er fólk sem þráir að finna hamingju, tilgang og lausn á vanda sínum. Jesús Kristur er svarið við þrá manneskjunnar eftir öllu þessu. Kristin kirkja, tökum okkur á! Samtíðin þarfnast okkar! Við höfum von, sú von er Jesús, komum henni til skila. Það er heilög skylda okkar.