Þessir erfiðu tímar draga kjarkinn úr mörgum og valda fólki áhyggjum og kvíða. Fólk spyr: Held ég vinnunni? Verða laun mín lækkuð? Hækkar bensínið enn meira og verð ég að takmarka notkun bílsins? Á ég fyrir lækniskostnaði og brýnustu nauðsynjum? Utanlandsferðin sem ég ætlaði í er auðvitað afskrifuð svo og nýja sófasettið og ekki skipti ég yfir í yngri bíl á næstunni.
Þegar áhyggjur og kvíði vegna ytri aðstæðna og verri afkomu sækja á fólk er greinilegt að þá dregur oftast líka úr andlegum þrótti. Þá er eins og andlegt slen aukist og margir hafa sig ekki í rækta sitt andlega líf. Þá fer fólk líka stundum að verða gagnrýnið og neikvætt og dregur sig í hlé.
Jesús sagði Mörtu að María systir hennar hefði gert það eina sem var nauðsynlegt: Að byggjast upp andlega –hún (María) settist við fætur Jesú og hlýddi á hann tala um Guðs ríki. Auðvitað þurfum við að sinna daglegum verkefnum, en ef við gefum okkur ekki tíma til að byggjumst upp í trúnni þá mun brauðstritið verða okkur mun erfiðara en ella og áhyggjur og kvíði eiga greiðari leið að okkur. Valið er þitt og mitt. Nú mun koma í ljós hvar hjarta okkar er: annað hvort í áhyggjum fyrir lífsafkomunni eða í því að verða ríkur hjá Guði. Hvort velur þú? Hvort vel ég?
Kirkjan okkar býður þér tækifæri til að rækta trúna í samfélagi safnaðarins –sameiginleg lofgjörð, bænir og fræðsla- og hvetur þig líka til að rækta trú þína heima við lestur Guðs orðs og bæn. Ekki vanrækja þessa dýrmætu hluti. Ef þú leggur rækt við uppbyggingu í kirkjunni og heima verður þú miklu sterkari til að takast á við andstreymi hins daglega lífs. Lífbaráttan “er bara hérna” og við erum þátttakendur í henni hvort sem okkur líkar betur eða verr, en við verðum að taka okkur tíma til að rækta trúna, það gerist ekki af sjálfu sér. Veldu rétt og þér mun vel farnast! Taktu þig á strax í dag!

