Það var stórt skref á sínum tíma þegar Kristskirkjan fékk sína eigin heimasíðu. Þar opnaðist gluggi sem margir gátu liðið inn um og kynnst starfi safnaðarins. Hægt var að kíkja inn án þess að gera vart við sig. Það getur verið mikill kostur fyrir þá sem eru að kynna sér starfið, hafa ekki komið á samkomur og/eða eiga erfitt með að hringja og spyrja. Við höfum orðið vör við að margt fólk hefur skoðað síðuna, sótt þangað upplýsingar og fengið fréttir af starfinu. Margir hafa sent inn bænarefni og fyrirspurnir og á heimasíðunni hefur fólk líka haft aðgang að greinum og pistlum sem fólk í okkar röðum hefur skrifað. Hitinn og þunginn af uppsetningu og uppfærslu gömlu heimasíðunnar hefur verið í höndum Unnars Erlingssonar og kunnum við honum bestu þakkir fyrir óeigingjarnt og gott starf á þessu sviði.
Í nútíma þjóðfélagi þurfa hlutirnir að vera í stöðugri endurnýjun til að þjóna tilgangi sínum og þá þarf að klæða nýjum búningi. Þannig er því einnig farið með heimasíðuna, þörf var á endurnýjun hennar. Og þegar boltinn var gefinn upp var það Edda Langworth sem greip hann og hefur hún hannað og sett upp hina nýju heimasíðu. Er það mikil vinna og flókin en vegna kunnáttu sinnar á þessu sviði og dugnaðar er málið í góðum farvegi.
Framvegis eins og hingað til verður fasta liði hér að finna, atriði og efni sem voru á fyrri síðunni, en því til viðbótar er meira myndrænt efni, einkum stuttmyndir úr starfinu svo og valdir sjónvarpsþættir sem kirkjan framleiðir og sýndir eru á Omega. Þannig mun fólk geta farið inn á heimasíðuna og leitað uppi þætti sem það hefur misst af eða langar til að sjá. Eins er meiningin að vera með hljóðupptökur af ræðum og kennslu sem flutt er í kirkjunni. Vonum við að þetta geri sem flestum kleift að njóta þess sem við höfum fram að færa, ekki síst fólki sem ekki kemst á samkomur eða nær ekki útsendingum Omega.
Vonum við að þið sem heimsækið síðuna finnið þar eitthvað áhugavert og uppbyggilegt og ekki síst upplýsingar um hið margþætta starf sem unnið er í söfnuðinum, hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða á Eyjólfsstöðum á Héraði. Horfið inn um gluggann (heimasíðuna) og komið svo í heimsókn í framhaldi af því. Það verður tekið vel á móti ykkur.

