Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Kúnum hleypt út
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Kúnum hleypt út

Ég var aldrei í sveit sem strákur, en eftir að Ungt fólk með hlutverk keypti Eyjólfsstaði (1978) kynntist ég sveit fyrir alvöru. Við skiptum úr fjárbúi í kúabú - það var gert af fjárhagsástæðum. Kúabú gaf meira, þannig var það þá. Þó að ég sæi ekki um skepnurnar umgekkst maður þær töluvert bara við það að vera á staðnum. Aldrei gleymi ég því þegar við hleyptum kúnum út eitt vorið. Mikið voru þær glaðar og frelsinu fegnar. Þær, þessar annars rólegu og þunglamalegu skepnur, stukku til og frá, tóku á rás, sprett og sprett, skelltu upp afturendanum og slettu úr klaufunum. Maður gat ekki annað en samglaðst þeim og þær komu manni í gott skap.

Seinna lögðum við niður kúabúið vegna aukinnar skattlagningar yfirvalda á landbúnað. Í framhaldi af því fórum við í búháttabreytingar og hófum skógrækt og gistiþjónustu en það er önnur saga.

Nú er sumarið komið og mannskepnunum hleypt út á grænt gras eftir langan vetur. Margir gleðjast við það, ekki síst þeir sem mánuðum saman hafa verið bundnir á bás inniverkefna. Fólk tekur á rás hingað og þangað og reynir að nota hið stutta sumar sem best það má. Það er skiljanlegt. Ég hvet alla til að njóta þess að vera úti í hinni grænu (eða bláu, eða gráu eða gulu.....) sköpun Guðs og drekka í sig angan blómanna, trjánna og alls þess sem Guð hefur gefið okkur.
Grænn litur verkar róandi. Þegar við höfum verið önnum kafin við krefjandi verkefni, þá er gott að fara út í náttúruna, horfa á gróðurinn, fjöllin, vatnið og hlusta á lækjarnið og fuglasöng. Maður verður sem nýr maður! Notum þess vegna sumarið til að vera sem mesti úti í hinni fögru sköpun Guðs. Látum fegurð hennar og samræmi koma jafnvægi á hugann og "hlöðum þannig rafgeyminn" til að takast á við uppbyggileg verkefni næsta hausts og vetrar.

Við hjónin verðum á Eyjólfsstöðum yfir verslunarmanna-helgina, ef Guð lofar. Ég hlakka mikið til. Þar verðum við með góðu fólki, á yndislega fallegum stað og við frábærar aðstæður sem þar eru. Og Guð verður þar. Getur það orðið betra?! Ég vona að þú verðir þar með okkur og gerir þennan tíma enn betri en ef þig skyldi vanta.

Sjáumst á Eyjólfsstöðum í ágúst!