Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Fréttir og fleira Biblíur til Líbíu
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Biblíur til Líbíu

Til eru samtök sem kallast Open doors og hafa það að markmiði að aðstoða aðþrengt kristið fólk sem býr í svokölluðum lokuðum löndum. Stofnandinn var hollendingur sem kallaði sig Bróður Andrés. Hann fór margar ferðir með Biblíur, peninga og önnur hjálpargögn til kristins fólks í kommúnistaríkjunum í A-Evrópu á árunum fyrir hrun berlínarmúrsins.  Eftir að þau lönd opnuðust og hægt var að flytja þangað hjálpargögn og annað sem gagnaðist hinum aðþrengdu kristnu söfnuðum, sneri Bróðir Andrés sér að örðum löndum sem þá voru lokuð og þar sem kristnir menn voru aðþrengdir eða ofsóttir.  Á síðustu árum hefur Open Doors einbeitt sér að aðstoð við kristið fólk í múslimalöndunum og orðið mikið ágengt.

Meðan Moammar Gaddafi réði og ríkti í Líbíu bjó kristið fólk þar við bág kjör og ofsóknir. Á þeim tíma reyndu Open Doors að koma kristilegu lesefni inn í landið með misjöfnum árangri. Gaddafi gaf út sitt “Græna-kver” með kenningum sínum og viðhorfum, rétt eins og Mao TseDung gaf út rautt kver.  Open doors lét prenta Nýja testamentið sem fór til Líbíu í grænni kápu og svipuðu broti og græna kverið hans Gaddafi, þannig var bókin í hálfgerðum “felulitum”. Jesús sagði að við ættum að vera kæn sem höggörmar en falslaus sem dúfur. Það gerði Open doors í þessu sambandi.

Þegar svo uppreisnin varð í Líbíu og landamærin opnuðust, a.m.k. að Egyptalandi, gat Open doors flutt inn töluvert magn af Nýja testamentinu, en nú varð að skipta um lit á kápunni og hafa hana rauða, vegna þess að nýju valdhafarnir tortryggðu grænar bækur, þeir óttuðust að þar væri á ferðinni græna kverið hans Gaddafi!

En nú er ástandið aftur að versna í Líbíu og nýju valdhafarnir eru miskunnarlausir í garð stuðningsmanna Gaddafis og hætt er við að þeir sýni kristnu fólki lítinn skilning, enda er uppgangur meðal islamista í Líbíu eins og í mörgum öðrum múslimskum löndum í Norður Afríku og Mið Austurlöndum.  Höfum þessi aðþrengdu trúsystkini okkar í huga í bænum okkar.    (Þýtt og endursagt úr fréttabréfi Open Doors)